Verðbólga í ágústmánuði mælist 5,6% og hækkar um 0,20% á milli mánaða. Þetta segir í tilkynningu frá Hagstofu Íslands.
Verð á fötum hækkaði um 4,1%, húsaleiga hækkaði um 0,9% en flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 9,6%.
Gjöld í háskóla hækkuðu um 15,1%. Hækkunin er að mestu leyti tilkomin vegna hækkunar skráningargjalds í opinberum háskólum úr 75.000 kr. í 100.000 kr.
Ákvæði kjarasamninga brostið
Í síðasta mánuði mældist verðbólga 5,3%. Hún hefur verið yfir 5% allt þetta ár, sem er rúmlega tvöfalt verðbólgumarkmið Seðlabankans. Bankinn stefnir að því að verðbólga sé sem næst 2,5%.
Ljóst er að forsenduákvæði kjarasamninganna sem voru undirritaðir 2024 er brostið.
Það kveður á um að ef ársverðbólga mælist meiri en 4,7% í lok ágúst sé heimilt að segja upp kjarasamningum á almennum vinnumarkaði – ef ekki tekst að semja um viðbrögð við forsendubresti.