Flugmaður flugvélar á leið frá Dúbaí til Tel Aviv stakk kollega sinn í morgun, hafa ísraelskir fjölmiðlar eftir farþegum vélarinnar. Neyðarkall barst eftir tveggja tíma flug og var vélinni lent í Sádí-Arabíu.
Flugfélagið Flydubai hefur staðfest að atvik hafi komið upp í fluginu og að allir farþegar séu heilir á húfi. BBC greinir frá því að neyðarkall hafi verið sent eftir slagsmál milli flugstjóra og flugmanns.
Ísraelski fjölmiðillinn The Jerusalem Post greinir frá því að annar flugmaðurinn hafi stungið hinn og að farþegar hafi aðstoðað við að yfirbuga árásarmanninn. Þá hefur fjölmiðillinn eftir einum farþeganna að tveir flugmenn sem hafi verið um borð hafi tekið við stjórn vélarinnar. Tannlæknir hafi verið í vélinni og að sá hafi beitt skyndihjálp til að bjarga lífi flugmannsins sem var stunginn.
Stjórnvöld í Sádí-Arabíu hafa greint frá því að flugmennirnir séu báðir særðir og hafi verið fluttir á spítala.
Þá hefur Jerusalem Post eftir embættismönnum í Ísrael að þeir telji að annar flugmaðurinn hafi gert tilraun til að ræna vélinni með það í huga að granda henni.
Meðan þetta gekk á missti vélin hæð, 17.000 fet á tveimur mínútum. Það eru 5.200 metrar.