Samgöngumál og borgarlínan eru eitt helsta deilumálið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara næsta laugardag. Þetta kemur fram í svörum flokka sem bjóða fram á höfuðborgarsvæðinu við kosningaprófi RÚV.
Hægt er að sjá svör flokkanna og allra frambjóðenda við kosningaprófinu hér.
Flestir hlynntir samgöngusáttmálanum
Þegar spurt var hvort sveitarfélagið ætti að taka þátt í svokölluðum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins var meirihluti flokka sammála því.
Samfylkingin, Viðreisn og Píratar merktu við að fullyrðingin væri mjög mikilvæg. Í rökstuðningi Viðreisnar við svari sínu segir að flokknum finnist óábyrgt að rífa upp með rótum samkomulag sem öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og ríkið hafa unnið eftir síðustu 7 ár. Ekki sé hægt að bíða lengur eftir fjárfestingu í samgöngum.
Píratar segja að höfuðborgarsvæðið þurfi öfluga og fjölbreytta samgönguinnviði til að bæta flæði um borgina. Þetta feli meðal annars í sér hágæða nútíma almenningssamgöngur til að mæta vaxandi bíla- og íbúafjölda.
Samfylkingin skilaði ekki rökstuðningi með svari sínu.
Tveir flokkar eru ósammála, Miðflokkurinn og Okkar borg. Miðflokkurinn segir í rökstuðningi sínum að endurskoða þurfi samgöngusáttmálann til samræmis við hagsmuni Reykvíkinga. Okkar borg segir að hluti samgöngusáttmálans séu göngu- og hjólastígar, brýr og göngubrýr sem eðlilegt sé að halda áfram. Hætta eigi þó við borgarlínu.
Eitt eru þó nærri allir flokkar sammála um í samgöngusáttmálanum en það eru Miklubrautargöng. Allir flokkar nema Vinstrið og Sósíalistaflokkurinn eru mjög ósammála þeirri fullyrðingu að sleppa eigi göngunum. Vinstrið er því nokkuð ósammála en Sósíalistar slepptu því að svara.
Skiptar skoðanir um Borgarlínu
Þegar horft er til næstu spurningar, hvort ljúka eigi við Borgarlínu í þeirri mynd sem núverandi áform gera ráð fyrir, er skiptingin nokkuð jöfn hvort sem flokkar eru með eða á móti.
Sjálfstæðisflokkurinn, Okkar borg, Miðflokkurinn og Góðan daginn eru allir mjög ósammála því. Flokkur fólksins og Framsóknarflokkur eru nokkuð ósammála því.
Sósíalistar og Viðreisn eru því nokkuð sammála og segir Viðreisn að finna þurfi ásættanlegar leiðir við einstakar framkvæmdir en halda heildaráformunum áfram. Ekki eigi að rífa upp með rótum samkomulag sem öll sveitarfélög hafi samþykkt.
Píratar, Samfylkingin og Vinstrið eru öll mjög sammála því að ljúka eigi við borgarlínu í núverandi mynd og telur Samfylkingin þetta mjög mikilvæga fullyrðingu í kosningaprófinu.
Framtíð Suðurlandsbrautar
Til stendur að gera breytingar á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar vegna samræmingar hennar við borgarlínu. Flestir flokkar eru mjög sammála því að koma eigi í veg fyrir breytingarnar.
Flokkur Fólksins, Framsóknarflokkurinn, Góðan daginn, Miðflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn og Okkar borg eru þar í hópi.
Í rökstuðningi Miðflokksins segir að algjört járnbrautarslys sé í uppsiglingu sem verði að stöðva. „Starfsemi fyrirtækja með um 2.400 starfsmenn mun eiga mjög erfitt uppdráttar í amk 5 ár og varanlegar breytingar spilla möguleikum atvinnulífs og umferðarflæði,“ segir i rökstuðningi Miðflokksins.