Jarðskjálfti, 7,4 að stærð, skók Japan í morgun, rétt fyrir klukkan fimm síðdegis að staðartíma, rétt fyrir átta að íslenskum tíma.
Upptök jarðskjálftans eru í sjó úti fyrir Iwate-héraði í norðurhluta landsins. Hann fannst víða og skulfu stórar byggingar í höfuðborginni Tókýó sem er mörg hundruð kílómetra í burtu.
Jarðskjálftastofnun Japans gaf út flóðbylgjuviðvörun. Hún segir að bylgjurnar gætu orðið allt að þriggja metra háar. Fólk var hvatt til að yfirgefa strandsvæði strax og halda á örugga staði, ofar í landslagi eða á staði þar sem fólki væri hjálpað að komast á brott.
80 sentímetra alda skall á höfninni í Kuji í norðurhluta Japan.