Kona á fimmtugsaldri hefur verið handtekin vegna gruns um að hafa stungið fjóra menn í Covent Garden í miðborg London í dag.
Covent Garden er vinsæll viðkomustaður ferðamanna í borginni.
Samkvæmt breskum fjölmiðlum er konan 47 ára gömul. Fjórir menn særðust í stunguárásinni og hafa verið fluttir til á sjúkrahús til aðhlynningar. Þeir eru á aldrinum 34 til 52 ára.
Fréttin verður uppfærð.