Tvö börn og tveir fullorðnir létust þegar skólarúta varð fyrir lest í Buggenhout í Belgíu. Samgönguráðherra landsins hefur staðfest að hlið við lestarsporið hafi verið niðri þegar slysið varð.
Slysið varð klukkan rúmlega átta í morgun að staðartíma. VRT-fréttamiðillinn í Belgíu greindi frá því í morgun að hlið við lestarsporið hafi verið niðri þegar slysið varð og að rauð umferðarljós hafi logað. Slysið varð um einn kílómetra frá lestarstöðinni í Buggenhout.
An Berger, talskona alríkislögreglunnar í Belgíu, segir ökumann skólarútunnar hafa verið að keyra á vegi samsíða lestarsporinu og að hann hafi síðan beygt yfir á sporið meðan hliðið var niðri.
Thomas Baeken, hjá belgíska lestarfyrirtækinu Infrabel, sagði lestarstjórann hafa notað neyðarhemla til að bremsa en ekki getað komið í veg fyrir áreksturinn.
Níu voru í rútunni; sjö nemendur, bílstjóri og umsjónarmaður nemendanna. Rútan var á leiðinni í sérkennsluskóla og Berger segir nemendur hafa verið í gagnfræðaskóla. Enginn í lestinni slasaðist.
„Hugur minn er hjá fórnarlömbum slyssins,“ sagði Jean-Luc Crucke, samgönguráðherra.
Zuhal Demir menntamálaráðherra sagði fréttirnar af slysinu hörmulegar. „Hugur minn er hjá fórnarlömbunum, fjölskyldum þeirra og þeim sem koma að slysinu.“