Fólki sem verður fyrir ástarsvikum á netinu er oft sama um peningana sem það tapar vegna þess að samskipti við annað fólk skipta það meira máli. Dæmi eru um að Íslendingar hafi tapað tugum milljóna á slíkum svikum, sem oft eru kennd við Nígeríusvindl, en að þeir sætti sig samt við það vegna samverunnar á netinu með annarri manneskju. Þetta segir Agnes Ósk Marzellíusardóttir yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. „Fólki er oft sama um peninginn af því það eignaðist vin,“ segir hún.
Slík svikamál eru algeng á Íslandi eins og í mörgum öðrum löndum í heiminum segir Agnes. Hún segir að áætlað fjárhagstjón Íslendinga vegna slíkra netglæpa hafi verið 427 milljónir króna á fyrsta helmingi þessa árs. Þetta er mikil aukning á milli ára en til samanburðar nam tilkynnt tjón 586 milljónum króna allt árið í fyrra og tæplega 200 milljónum króna árið 2024. Heimildir fréttastofu herma að einungis í sumar hafi að minnsta kosti vel á annað hundrað ástarsvikamál komið upp við eftirlit íslenskra fjármálafyrirtækja.
Mikinn meirihluta ástarsvikamála sem koma upp á Íslandi má rekja til glæpahópa í Nígeríu. Hugsanlegt er að á milli 80 og 90 prósent slíkra svika séu framin af glæpamönnum þar. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru glæpahópar í Nígeríu sem sérhæfa sig í Íslandi og tala við íslensk fórnarlömb á íslensku sem líklega er þýdd af gervigreind.
Þetta er oft í gegnum samfélagsmiðla eins og WhatsApp eða Telegram. Greiðslurnar frá íslensku fórnarlömbunum til glæpahópanna geta svo farið fram með notkun á rafmyntum, greiðslum á erlenda bankareikninga eða með gjafakortum sem hægt er að kaupa í gegnum erlendar netsíður. Svindlararnir selja gjafakortin svo oft áfram með afföllum, jafnvel til einstaklinga í Kína.
Agnes lögreglufulltrúi segir að það sem henni finnist nöturlegast við þessi netsvikamál séu ástarsvikamálin því þau sýni hvaða einmanaleikinn sé mikill hjá mörgum í samfélaginu. Hún segir algengt að fórnarlömb ástarsvika sé fólk sem hafi orðið fyrir nýlegu áfalli í lífinu, makamissi eða sjúkdómi: ,,Samtölin sem lögregla á við fólk sem verður fyrir ástarsvikum eru stundum bara eins og við fólk í ástarsorg.“
Fjallað er um aukna tíðni ástarsvikamála á Íslandi og rætt við Agnesi og Alexander Loga Jónsson, starfsmann Arion banka, í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þáttinn má hlusta á hér:
Segir svikarana réttlæta svikin með peningaleysi
Alexander Logi Jónsson er sérfræðingur í netsvikamálum hjá Arion banka. Hann hefur unnið við þetta í tvö ár, þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs gamall, og er að verða þekkt nafn hjá þeim sem fylgjast með netsvikamálum í kerfinu.
Alexander kannast við að fólk geti jafnvel sætt sig við að greiða peninga til svikara fyrir samskipti. ,,Það kemur fyrir að þetta sé í raun, þessi samskipti brotaþola við svikarann, séu jafnvel einu samskiptin sem brotaþolinn er með. Hann er þá í raun og veru bara búinn að sætta sig að borga ákveðna upphæð á mánuði til að halda þessum samskiptum áfram. Það eru örfá tilfelli þar sem þetta hefur gerst. Þá er ekki um að ræða einhverja mikla fjármuni allt í einu en auðvitað er þetta yfir langt tímabil og getur numið einhverjum milljónum jafnvel.“
Alexander segir að þeir starfsmenn Arion banka sem fylgist með netsvikum hafi átt í samskiptum við ástarsvikara erlendis. Hann segir að þeir réttlæti svikin með því að þeir þurfi peninga til að geta lifað af í heimalandi sínu. „Það hefur komið upp að svikarinn hafi í raun játað; að þetta sé bara hans leið til að fjármagna líf sitt. [...] Að þetta séu einu tekjurnar sem hann geti fengið í heimalandi sínu: Að svíkja fólk.“
Spænskur blaðamaður um Nígeríusvik og einmanaleikann
Ástarsvikamál sem rekja má til Nígeríu eru viðfangsefni nýrrar bókar eftir spænska blaðamanninn Carlos Barragán sem skrifar meðal annars í The New York Times. Bókin heitir The Yahoo Boys: Real Life with the Love Scammhers of Nigeria. Það sem rak Barragán áfram í að skrifa bókina var að móðir hans lenti í slíkum ástarsvikara á netinu. Barragan náði hins vegar að koma móður sinn í skilning um að maðurinn sem hún var að tala við var svikari og hún sendi honum enga peninga. Upplifunin hafði hins vegar mikil áhrif á móður hans sem var einmana. Eftir þetta fékk Barragán mikinn áhuga á Nígeríusvikum á netinu.
Í bókinni segir Barragán sögu fjögurra ungra manna í Nígeríu sem stunda ástarvik á netinu. Mennirnir villa á sér heimildir, þykjast bæði vera karlmenn og konur og herja á fólk á Vesturlöndum.
Einn svikarinn er 22 ára gamall og heitir Chibuike. Hann kemst í samband við írska konu sem er tæplega sextug sem heitir Theresa. Hún er fátæk, einstæð móðir sem býr í Dublin. Chibuike þykist vera frægur bandarískur fjölbragðaglímumaður sem heitir Coady Rhoades og Theresa trúir honum. Chibuike hefur af henni tugþúsundir punda yfir langt tímabil og birtir Barragán nokkur af ástarskilaboðunum frá honum til Theresu.
Ein af skilaboðunum frá Chibuike til Theresu hljóma svona í íslenskri þýðingu:
Ég veit að sjálft Atlantshafið skilur okkur að og ég myndi óska að svo væri ekki því þegar ég vakna á hverjum einasta degi þrái ég að vera með þér. Þrátt fyrir fjarlægðina sem skilur okkur að þá ertu alltaf í huga mínum og hjarta. Á hverju kvöldi, undir stjörnunum, óska ég þess að sá dagur renni loksins upp að við getum verið saman að eilífu. Á hverjum degi hugsa ég um þig. Þegar ég lýk aftur augum mínum, þegar ég syng og dansa við ástarlög, þegar ég kíki á tölvupóstinn minn, þá hugsa ég um þig. Þegar ég geng til hvílu einmana í herberginu mínu og gef mig á vald undursamlegum draumum, þá mun ég alltaf hugsa um þig. Ég veit að einn dag munum við hittast og verja lífi okkar saman. Ástin er eins og fallegur garður. Hún færir okkur lífsfyllingu og kraft. Hún fyllir líf okkar alsælu. Líf án ástarinnar er ekkert líf. Ég er svo heppinn að vera ástfanginn. Ég elska þig ástin mín. Í huga mínum ert þú ekkert minna en draumur sem er orðinn að veruleika. Ég elska þig svo heitt.
Eitt af því sem Barragán gerir í bókinni er að tengja tíðni slíkra ástarsvika við einmanaleikann. Hann segir að faraldur einmanaleika gangi yfir heimsbyggðina og Nígeríusvindlararnir nýti sér þetta ástand til að hafa fé af grunlausu fólk sem oft og tíðum er einmana. Einmanaleikinn er er orðið eitt helsta einkenni á samtíma okkar, segir Barragán í bókinni.
Versta tilfellið sem Barragán nefnir í bókinni er af 79 ára gömlum Bandaríkjamanni sem sendi tæpa milljón dollara, meira en hundrað milljónir íslenskra króna, til svikara í Nígeríu sem þóttist vera bandaríska fjölbragðaglímukonan Alexa Bliss. Gamli maðurinn hélt að hann ætti í ástarsambandi við hana. Börn mannsins komumst svo að því eftir að hann lést að hann hafði átt í samskiptum við tvær tölvur sem voru með IP-tölur í Nígeríu.