Fimm voru drepnir og tíu særðust í árás Úkraínuhers á vöruhús í nágrenni höfuðborgarinnar Moskvu í nótt. Héraðsstjóri Moskvu-héraðs tilgreindi ekki nánar frá skotmarki árásarinnar en úkraínskir miðlar segja hana hafa beinst gegn fyrirtækinu Wildberries.
Úkraínuher hefur á síðustu vikum gert endurteknar árásir á vöruhús og dreifingarmiðstöðvar netverslunarrisans sem er gjarnan kallaður „rússneska Amazon“.
Stjórnvöld í Kænugarði saka fyrirtækið um að sjá Rússlandsher fyrir ýmiss konar íhlutum í dróna og öðrum birgðum. Þeim ásökunum hafa stjórnvöld í Moskvu hafnað.
Yfirvöld í Rússlandi segja árásir hafa verið gerðar á vöruhús Wildberries í tveimur öðrum sýslum í nótt. Varnarmálaráðuneytið þar í landi segir 320 dróna frá Úkraínu hafa verið skotna niður í nótt.
Úkraínsk yfirvöld segja konu á níræðisaldri hafa verið drepna í árás Rússa á hafnarborgina Mykolaiv í suðurhluta Úkraínu í nótt. Sjö særðust í árásinni, þar á meðal tvær stúlkur, tveggja og tólf ára. Tveir til viðbótar særðust í árás syðst í landinu.