Erik Fleming, fíkniráðgjafi bandaríska leikarans Matthew Perry, hefur hlotið tveggja ára fangelsisdóm fyrir aðild sína að dauða hans. Fleming er sá fjórði sem er ákærður í máli Perrys.
Fleming er sagður hafa útvegað leikaranum ketamín undir því yfirskini að hann teldi sig vera gera góðum vini greiða. Hann segist hafa verið bugaður af sorg og skömm þegar hann frétti af dauða Perrys, þetta séu stærstu mistök lífs hans.
Fleming er einn fimmmenninganna sem sagðir eru hafa útvegað leikaranum ketamín. Perry fannst látinn í heitum potti á heimili sínu í Los Angeles í október 2023. Krufning leiddi í ljós að Perry hafði látist af völdum ketamínneyslu, drukknunar og kransæðastíflu. Honum hafði verið ávísað ketamíni og hafði glímt við fíknisjúkdóma árum saman.