Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum fyrirhugaðs verkfalls flugvirkja. Viðræður Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair í vikunni skiluðu ekki árangri og flugvirkjar hafa boðað ótímabundið verkfall í næstu viku náist samningar ekki. Að óbreyttu hefst það 23. september.
SAF segir mikilvægt að verkfallið verði ekki að veruleika og að samningsaðilar leggi allt kapp á að ná saman.
„Takist ekki samkomulag krefjast almannahagsmunir þess að stjórnvöld grípi inn í til að afstýra stórtjóni fyrir ferðaþjónustuna, atvinnulífið og íslenskt samfélag í heild,“ segir í yfirlýsingu SAF.
Ferðamenn byrjaðir að afbóka
Þegar sé farið að bera á afbókunum hjá ferðaþjónustufyrirtækjum um land allt. Þau hafi einnig fengið fyrirspurnir um niðurfellingu, endurgreiðslu og frestun ferða.
„Alvarleg röskun á allri virðiskeðju atvinnugreinarinnar blasir við verði verkfallið að veruleika. Íslensk ferðaþjónusta og verðmætasköpun greinarinnar fyrir samfélagið byggir á öruggum og fyrirsjáanlegum flugsamgöngum,“ segir í yfirlýsingunni.
„Þegar þeim er ógnað með verkfallsaðgerðum af þessu tagi eru afleiðingarnar ekki bundnar við deiluaðila heldur lenda þær á þúsundum ferðamanna og hundruðum fyrirtækja um allt land sem eiga enga aðkomu að deilunni.“
Milljarða tekjutap á örfáum dögum
Tekjutap geti hlaupið á milljörðum á örfáum dögum og tjón á orðspori Íslands sem áreiðanlegs áfangastaðar geti varað mun lengur.
„Slíkt tekjutap hefur ekki aðeins áhrif á fyrirtæki og starfsfólk í greininni heldur einnig á tekjur ríkissjóðs og þar með svigrúm samfélagsins til að standa undir opinberri þjónustu og öðrum sameiginlegum verkefnum.“
Takist ekki samkomulag krefjast almannahagsmunir þess að stjórnvöld grípi inn í til að afstýra stórtjóni fyrir ferðaþjónustuna, atvinnulífið og íslenskt samfélag í heild.