Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna viðurkennir að 14 milljóna dollara endurbætur á Spegilstjörninni (e. Reflecting pool) við Lincoln-minnisvarðann í Washington DC, sem hófust að frumkvæði Donalds Trump Bandaríkjaforseta, hafi verið gallaðar. Þá fallast yfirvöld á að fella niður sakamálið gegn fyrrum ólympíumanninum David Hearn, en hann var sakaður um að hafa skemmt tjörnina, samkvæmt nýjum dómsskjölum frá Jeanine Pirro, ríkissaksóknara í DC.
CNN greinir frá.
„Það var ekki fyrr en eftir að ákæra [gegn Hearn] var gefin út að innanríkisráðuneytið afhenti ríkissaksóknaraembættinu í DC frekari skjöl sem bentu til þess að skemmdir á spegiltjörninni við Lincoln-minnisvarðann í júní 2026 hafi verið afleiðing af gölluðum frágangi verktakans, Atlantic Industrial Coatings, og flýtis við að ljúka verkinu fyrir viðburði tengda 250 ára afmæli Bandaríkjanna á vikunum í kringum þjóðhátíðardaginn 2026,“ skrifaði skrifstofa Pirro.
Lögmenn Hearn sögðu í yfirlýsingu vegna ákvörðunarinnar að málsskýring Trump-stjórnarinnar hefði aldrei átt að fara af stað.
„Niðurfelling málsins í dag afmáir ekki misnotkun ríkisvaldsins með því að handtaka og ákæra þjóðrækinn Bandaríkjamann sem gerði ekkert af sér. Aðferð stjórnvalda var að „skjóta fyrst, spyrja svo“.Stjórnvöld skulda Hearn afsökunarbeiðni.“