Um er að ræða svæði sem liggur að sjónum í suðvesturhluta Albaníu. Í apríl seldi Shehu strandlengjuna félaginu Albanian Land Development, fyrirtæki í eigu Sazan Real Estate Development sem Kushner og aðrir fjárfestar hafa stutt.
Fyrirhuguð áform þeirra um að byggja marga milljón dollara dvalarstað hafa hlotið töluverða gagnrýni. Efnt hefur verið til mótmæla af hálfu náttúruverndarsamtaka.
„Rökstuddur grunur er fyrir hendi, byggður á sönnunargögnum, um að fyrrnefndar eignir hafi verið fengnar með notkun falsaðra skjala,“ segja saksóknarar í málsskjölum sem fréttaveitan Reuters hefur í sínum fórum. Kushner er ekki sakaður sjálfur um neinar misgjörðir.
Tólf íbúar í þorpinu Zvernec, nærri umræddri strandlengju, sýndu blaðamönnum Reuters afsöl og skattskýrslur sem íbúarnir sögðu sanna að þeir væru réttmætir eigendur landsins.
Talsmaður Sazan Real Estate Development vildi ekki tjá sig um ásakanirnar á hendur Shehu en telur fyrirtækið að kaupin hafi verið lögleg. Talsmaður Kushner vildi ekki tjá sig um fréttina.