Maður hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Suðurlands fyrir hegningar- og umferðarlagabrot með því að aka í veg fyrir mótorhjól með þeim afleiðingum að ökumaður hjólsins lést. Hlaut maðurinn skilorðsbundinn dóm en atvikið átti sér stað í júní síðastliðnum við vegamót að Kerlingardalsvegi í Mýrdalshreppi. Svefnleysi skerti verulega færni mannsins til að stjórna bílnum með öruggum hætti.
Fær skilorð fyrir að verða ökumanni mótorhjóls að bana í Mýrdalshreppi