Úrskurðarnefnd kosningamála hefur staðfest þá niðurstöðu Þjóðskrár Íslands að skráning íslensks ríkisborgara, sem býr í Danmörku, á kjörskrá taki ekki gildi fyrr en 1. desember næstkomandi. Viðkomandi sótti um skráningu á kjörskrá til að geta kosið í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi um framhald aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins og ljóst er því að umræddur einstaklingur fær ekki að taka þátt í atkvæðagreiðslunni.
Fær ekki að kjósa 29. ágúst