Fulltrúar fjölda Evrópuríkja, þar á meðal dómsmálaráðherra Íslands, koma saman á fjarfundi um Schengen-samstarfið vegna atburðanna í Ceuta síðustu daga núna klukkan átta.
Írar, sem fara með formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins, boðuðu til fundarins eftir að tuttugu og tveir leiðtogar Evrópusambandsríkja sendu um helgina bréf til framkvæmdastjórnar sambandsins og lýstu yfir áhyggjum af öryggi á landamærum á Schengen-svæðinu.
Tilefnið er að tugir þúsunda íbúa Marokkó streymdu yfir landamæri spænsku hólmlendunnar Ceuta, í Norður-Afríku, fyrir fáeinum dögum. Áætlað er að um sextíu þúsund hafi farið yfir landamærin en stærstur hluti þeirra er farinn frá Ceuta. Íbúar spænsku hólmlendunnar eru aðeins rúmlega áttatíu þúsund.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, segir fundinn gott tækifæri til að draga lærdóm af atburðum síðustu daga og móta stefnu um hvernig Evrópuríki geta mætt óhefðbundnum áskorunum á landamærum.
Atburðurinn í Ceuta hefur vakið spurningar um landamæraöryggi í Evrópu og margir hafa gagnrýnt viðbrögð Spánverja í málinu, þar á meðal leiðtogar Ítalíu og Danmerkur. Bæði ríki fóru fram á það í síðustu viku að Spáni yrði vikið tímabundið úr Schengen-samstarfinu.
Samstarfið nær til tuttugu og sjö ríkja, tuttugu og þriggja ríkja í ESB og EFTA-ríkjanna, Íslands, Lichtenstein, Noregs og Sviss. Það felur meðal annars í sér afnám persónubundins eftirlits á innri landamærum Schengen-ríkjanna. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra situr fundinn fyrir hönd Íslands en á honum verður rætt um viðbrögð við atburðunum í Ceuta síðustu daga.