Ríki Evrópusambandsins standa frammi fyrir vaxandi vanda vegna öldrunar þjóða og mikilla ófjármagnaðra lífeyrisskuldbindinga. Gögn sem Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur hefur tekið saman sýna að staða Íslands er gjörólík.
Þjóðin er yngri, framfærsluhlutfall aldraðra lægra og lífeyriskerfið að stærstum hluta fjármagnað.
Í flestum ESB-ríkjum eru lífeyrisskuldbindingar aftur á móti að mestu ófjármagnaðar og framtíðargreiðslur víða háðar því að vinnandi fólk standi undir þeim. Samhliða fækkar fólki á vinnualdri miðað við fjölda eldri borgara. Þróunin getur þrengt verulega að ríkisfjármálum ríkja sem sum hver glíma nú þegar við vaxandi opinberar skuldir.
Lesa má nánar um málið á bls. 6 í Morgunblaðinu í dag