Ísrael lenti í öðru sæti og Rúmenía í því þriðja. Þetta er í fyrsta sinn sem Búlgaría fer með sigur af hólmi en landið tók ekki þátt síðustu fjögur ár.
Í tilkynningu kemur fram að keppnin verði haldin á Arena Burgas-leikvanginum og að borgin sé sú fjórða stærsta í Búlgaríu. Burgas er í um 400 kílómetra fjarlægð frá Sofiu, höfuðborginni, og er við strönd Svartahafsins.
Nánar er fjallað um borgina, staðsetningu hennar, menningu og viðburði hér.
Ísland tók ekki þátt í Eurovision í ár. Tekin var ákvörðun um það í desember í fyrry. Vísað var til þess að þátttaka ísraelska ríkissjónvarpsins KAN hefði valdið óeiningu, bæði meðal aðildarstöðva Sambands evrópskra útvarpsstöðva og almennings. Önnur lönd sem ekki tóku þátt voru Hollendingar, Spánverjar, Írar og Slóvenar.
Ekki liggur fyrir hvort tekið verði þátt í Búlgaríu. Tilkynnt var í gær um nýjar reglur um þátttöku í Eurovision í gær.
Þær kveða meðal annars á um að flytjendur þurfi að vera eldri en átján ára og að sigurþjóðir geti misst rétt á að halda keppnina ef vopnuð átök eiga sér stað í landinu.