ESA stefnir Íslandi vegna bókunar 35
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur stefnt Íslandi fyrir dóm vegna bókunar 35. Íslenska ríkið hefur ekki innleitt bókunina með réttum hætti. ESA telur íslensk lög ekki tryggja að einstaklingar og fyrirtæki njóti til fulls réttinda samkvæmt EES-samningnum. Bókun 35 hefur verið hluti af samningnum frá upphafi.
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, vísaði í dag máli gegn íslenska ríkinu til EFTA-dómstólsins vegna þess að íslensk lög tryggi ekki forgang innleiddra EES-reglna þegar þær stangast á við aðrar innlendar reglur. Stofnunin telur Ísland ekki hafa uppfyllt skuldbindingar sínar samkvæmt bókun 35 við EES-samninginn.
„Einstaklingar og fyrirtæki þurfa að geta treyst á þau réttindi sem þau njóta í krafti EES samningsins á Íslandi“
Bókunin kveður á um að Ísland, Liechtenstein og Noregur tryggi að innlend lög sem innleiða skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum njóti forgangs ef þau rekast á aðrar innlendar reglur. Að mati ESA hefur íslenska ríkið ekki innleitt þessa skyldu með fullnægjandi hætti. Afleiðingin sé sú að einstaklingar og fyrirtæki geti ekki notið til fulls þeirra réttinda sem samningurinn tryggir þeim.
Áhyggjur fyrst settar fram árið 2012
ESA lýsti fyrst áhyggjum af innleiðingu bókunarinnar á Íslandi árið 2012. Þá lágu fyrir dómar Hæstaréttar sem gáfu til kynna …