ESA, Eftirlitsstofnun EFTA hefur hafið málaferli gegn íslenska ríkinu vegna bókunar 35 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. ESA greindi frá þessu í dag, en undirbúningur að málaferlunum hefur staðið í nokkurn tíma.
Málinu hefur nú verið vísað til EFTA-dómstólsins í Lúxemborg, og verður rekið þar sem svokallað samningsbrotamál.
Í fréttatilkynningu sem ESA sendi frá sér í morgun segir að þetta skref hafi verið tekið „...þar sem íslensk lög tryggja ekki að innleiddar EES-reglur haldi gildi sínu til fulls líkt og Bókun 35 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið gerir kröfu um.“
Í tilkynningu ESA kemur fram að stofnunin hafi fyrst hreyft við þessu máli árið 2012. Svokallað samningsbrotamál vegna bókunar 35 var opnað hjá ESA árið 2017, og stofnunin gaf út rökstutt álit í september 2020.
„ESA hefur lengi átt í samskiptum við íslensk stjórnvöld um Bókun 35,“ er haft eftir forseta ESA, Arne Røksund, í tilkynningu stofnunarinnar. „Hins vegar hafa réttindin sem bókunin kveður á um ekki enn verið tryggð með fullnægjandi hætti í íslenskri löggjöf. Einstaklingar og fyrirtæki þurfa að geta treyst á þau réttindi sem þau hljóta í krafti EES samningsins á Íslandi. Við höfum þess vegna beðið EFTA dómstólinn að úrskurða um það hvort að íslenska ríkið hafi uppfyllt skyldur sínar.“
Frumvarp um innleiðingu bókunar 35 var lagt fram á Alþingi í síðustu viku og líklegt er talið að fyrsta umræða um það fari fram í október. Þetta er í fjórða skiptið sem frumvarp um bókunina er lagt fram, en það var fyrst gert fyrir þremur árum, í tíð síðustu ríkisstjórnar.