Erfiðara fyrir ungt fólk að fá vinnu
Aukið atvinnuleysi á meðal ungs fólks vekur athygli. Á meðan ungt fólk lýsir áhyggjum af tækifærum til framtíðar segjast atvinnurekendur hafa brennt sig á yngstu kynslóðinni, sem sé alin upp við önnur gildi og taki vinnu ekki jafn alvarlega. Þeir hvetja ungt fólk þó til að gefast ekki upp.
Með auknu atvinnuleysi síðastliðin ár og mánuði hefur fjölgun atvinnulausra á meðal ungs fólks vakið sérstaka athygli. Nýjar tölur úr vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar sýna að meðal fólks á aldrinum 16 til 24 ára mældist árstíðarleiðrétt atvinnuleysi í maí 13 prósent, eða um 5.000 manns. Þetta hlutfall er veruleg aukning frá maí síðasta árs þegar 4,9 prósent, eða um 2.000 manns á sama aldri, voru án atvinnu.
Þessi þróun sést einnig þegar horft er til lengri tíma. Atvinnuleysi meðal 16 til 24 ára fólks mældist 8,1 prósent árið 2024, 12,2 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2025 og 18,0 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2026. Þrátt fyrir að ungu fólki í atvinnuleit fjölgi jafnan á vorin þegar skólahaldi lýkur gefa tölurnar skýra mynd af versnandi stöðu ungs fólks á vinnumarkaði.
Þegar litið er á alla aldurshópa þá er klár fjölgun atvinnulausra, en staða ungs fólks sker sig sérstaklega úr. Á fyrsta ársfjórðungi 2026 var …