Er ríkisstjórn Bretlands að falla? – Þriðji ráðherrann segir af sér
Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, stendur nú frammi fyrir nokkurs konar uppreisn innan eigin flokks eftir að þriðji ráðherrann sagði sig úr ríkisstjórninni en ástæðan sem allir ráðherrarnir hafa gefið er vantraust á sitjandi forsætisráðherra.
Alex Davies-Jones sagði af sér embætti innan við klukkustund eftir að Jess Phillips yfirgaf embætti sitt sem ráðherra barnaverndar og öryggismála. Fyrr um daginn hafði Miatta Fahnbulleh einnig sagt af sér úr húsnæðisráðuneytinu.
AuglýsingAfsagnirnar eru nýjasta en líklega stærsta höggið fyrir Starmer eftir hörmulegar niðurstöður Verkamannaflokksins í sveitarstjórnarkosningum síðustu viku. Nú hafa yfir 80 þingmenn flokksins opinberlega kallað eftir því að hann stígi til hliðar og fimm aðstoðarmenn ráðherra hafa einnig yfirgefið ríkisstjórnina.
„Þjóðin hefur talað“
Í afsagnarbréfi sínu sagði Jess Phillips að hún gæti ekki lengur starfað undir núverandi forystu þar sem hún sæi ekki þær breytingar sem almenningur hefði vænst.
„Ég sé ekki þá breytingu sem ég tel að ég og landið búist við,“ skrifaði hún.
Alex Davies-Jones sagði niðurstöður kosninganna hafa sent skýr skilaboð til flokksins.
„Landið hefur talað og við verðum að hlusta,“ sagði hún í yfirlýsingu sinni.
Starmer neitar að víkja
Þrátt fyrir aukinn þrýsting neitar Starmer enn að segja af sér. Á ríkisstjórnarfundi í Downingstræti sagði hann ráðherrum sínum að formlegt ferli til að skora á leiðtogastöðu hans hefði ekki verið virkjað.
Orðalag hans hefur verið túlkað sem skýr vísbending um að hann ætli sér að berjast áfram og jafnvel taka þátt í leiðtogakjöri ef til þess kemur.
Margir telja heilbrigðisráðherrann Wes Streeting líklegastan til að taka við af Starmer.
Tal um „valdarán“
Flokksfélagar Streeting hafa sakað hann um að undirbúa valdarán gegn forsætisráðherranum.
Vinstrisinnaðri armur Verkamannaflokksins óttast að Streeting, sem er talinn til hægrisinnari arms flokksins og er fylgismaður stefnu Tony Blair, sé að reyna að ná völdum áður en aðrir mögulegir leiðtogaframbjóðendur ná að skipuleggja sig í slíka baráttu.
Auglýsing