Lögregla hefur lítið í höndunum við rannsókn innbrotsins á Dalsbú í Mosfellsbæ þar sem þúsund minkum var sleppt úr búrum sínum aðfaranótt miðvikudags.
Enginn liggur undir grun um verknaðinn og fá sönnunargögn eru í málinu. Lögregla þiggur allar ábendingar sem gætu aðstoðað við rannsóknina.
Enn sem komið er er enginn til að kalla í skýrslutöku og fátt til að byggja á við rannsókn málsins.
Hildur Rún Björnsdóttir, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, biður fólk sem gæti vitað eitthvað um málið að gefa sig fram við lögreglu. „Kannski finnst fólki eitthvað ómerkilegt sem getur skipt gríðarlega miklu máli.“
Hún segir að lítið myndefni og nánast engin sönnunargögn séu af vettvangi. „Það er það sem gerir okkar vinnu svo erfiða.“
Enginn undir grun vegna innbrota í Reykjabú og svínabú Stjörnugríss
Svipað er uppi á teningnum í rannsóknum innbrotanna á svínabú Stjörnugríss og alifuglabúið á Reykjum fyrr á árinu. Þar var einnig brotist inn, skemmdarverk unnin og dýrum hleypt út.
Í þeim málum liggur heldur enginn undir grun.
Miði fannst í Dalsbúi eftir innbrotið en Hildur segir að lögregla sé ekki viss um að hann tengist málinu. Miðanum svipar ekki til þeirra sem fundust á vettvangi annarra búa sem brotist hefur verið inn á.
Hildur segir að lögregla fari yfir myndefni og vonir standi til þess að eitthvað skýrist um hver sökudólgurinn sé.
Ekki er vitað hvort þeir sömu hafi staðið að baki innbrotunum þremur.