Ekkert blóð fannst í bifreið manns sem ákærður er fyrir að hafa orðið félaga sínum að bana í heimahúsi á Kársnesi í Kópavogi í nóvember í fyrra. Mikið blóð úr honum fannst á vettvangi manndrápsins, sem hann yfirgaf á bíl sínum eftir að hafa verið í heimsókn hjá hinum látna föstudagskvöldið 28. nóvember.
Þetta er meðal þess sem kom fram í skýrslutökum yfir lögreglumönnum á öðrum degi aðalmeðferðar málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag.
Georgios Ntentes frá Grikklandi er gefið að sök að hafa stungið manninn þrisvar sinnum í kviðinn með hníf, skorið hann, stungið með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann með þeim afleiðingum að hann lést.
Fyrsti lögreglumaðurinn sem gaf skýrslu fyrir dómi í dag var sá sem kom fyrstur á vettvang á hádegi 30. nóvember. Hann sagðist hafa fengið tilkynningu um meðvitundarlausan mann í íbúð á Kársnesi. Þegar hann kom á vettvang hafi hann heyrt brothljóð og öskur og svo hafi tvær konur komið grátandi fyrir hornið. Það voru systir og kærasta hins látna sem komu að honum. Þær gáfu skýrslu fyrir dómi í gær.
Lögreglumaðurinn sagðist hafa stigið inn í íbúðina og séð manninn látinn á gólfinu með mikla áverka. Hann hafi ákveðið að kalla strax eftir liðsauka.
Lögreglumenn frá rannsóknardeild og tæknideild lögreglu komu þá á staðinn auk réttarlæknis. Lögreglumenn úr rannsóknardeild og tæknideild gáfu einnig skýrslu fyrir dómi í dag.
Þeir lýstu mikilli óreiðu á vettvangi, einn þannig að það hefði verið einhvers konar blanda af framkvæmdaóreiðu og svo hafi verið eins og eitthvað annað hefði gengið á, svo sem átök. Sakborningurinn lýsti því í skýrslutöku í gær að hann hefði verið að aðstoða hinn látna við að gera upp eldhúsið í íbúðinni.
Ekki hægt að aldursgreina þornað blóð
Mikið blóð úr Georgios, sem er gefið að sök að hafa orðið honum að bana, fannst í íbúðinni. Hann gaf þær skýringar fyrir dómi í gær að hann hafi iðulega verið með sár á höndum vegna vinnu og þau hefðu getað opnast við framkvæmdirnar. Hann taldi blóðið á vettvangi hafa verið gamalt.
Lögreglumaður úr tæknideild staðfesti að ekki væri hægt að aldursgreina þornað blóð. Lögreglumönnunum bar saman um að við fyrstu sýn hafi þeim fundist líklegra en ekki að einhver annar hafi veitt honum áverkana. Þá hafi viðbrögð lögreglu á vettvangi almennt bent til þess.
Sakborningur var handtekinn nokkrum dögum eftir að maðurinn fannst látinn á heimili sínu. Honum var sleppt en svo handtekinn aftur nokkrum dögum síðar og hnepptur í gæsluvarðhald. Samkvæmt því sem kom fram í vitnisburðum lögreglu í dag var hann handtekinn aftur eftir að blóðugt skófar á baðmottu á vettvangi var talið samræmast mynstri undir skóm sem hann skipti yfir í þegar hann fór heim eftir heimsókn til hins látna um kvöldið.
Georgios fór heim til sín eftir rúmlega klukkutíma heimsókn hjá hinum látna. Hann skipti um skó sem hann segir að hafi verið blautir. Skórnir sem hann var í heima hjá látna eru ekki meðal sönnunargagna í málinu, en sakborningur segir þeim hafa verið hent ásamt öðru dóti því fjölskyldan hafi verið að undirbúa flutning til Grikklands.
Skórnir sem hann fór í eftir heimsóknina eru sagðir samræmast blóðugu skófari á baðherbergismottu á vettvangi. Lögregla og saksóknarar telja Georgios hafa farið aftur heim til látna seinna um kvöldið, en skilið bíl og síma eftir á bílastæðinu við Sundlaug Kópavogs. Í skýrslutökum hjá lögreglu segist hann hafa farið í sund, en við rannsókn kom í ljós að hann hafði ekki farið í sund. Þá breytti hann framburði sínum og sagðist hafa reykt gras á bílastæðinu við sundlaugina.
Skórnir sem um ræðir höfðu verið þvegnir þegar lögregla lagði hald á þá. Þeir voru meðhöndlaðir með efni sem á að sýna ummerki um blóðleifar. Rannsóknin gaf til kynna að blóð hefði verið á skónum, en önnur efni eins og járn og bleikiefni í þvottaefni geta gefið ranga svörun.
Tæknideild lögreglu skoðaði einnig bíl Georgios með sömu aðferð til að athuga hvort þar fyndust blóðleifar. Rannsóknin benti ekki til þess að neitt blóð hefði verið í bílnum. Rannsóknarlögreglumaður sagði við skýrslutökuna fyrir dómi í dag að bíllinn hefði ekki litið út fyrir að hafa verið þrifinn nýlega.