Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, er allt annað en sáttur við skrif Arnars Þórs Ingólfssonar, starfsmanns þingflokks Samfylkingarinnar og fyrrverandi blaðamann, sem birtust á Vísi í gær.
Í greininni var Elliði gagnrýndur fyrir stjórnsýslu og ákvarðanatöku sem Arnar segir hafa einkennst af skorti á samráði og óskýrum hagsmunatengslum. Vísaði hann meðal annars til þess að rekstur eina leikskóla bæjarins hafi verið færður til Hjallastefnunnar án samráðs við starfsfólk eða foreldra, auk þess sem spurningar séu sagðar hafa vaknað um fasteignaviðskipti Elliða við stóran atvinnurekanda í sveitarfélaginu.
Þá gagnrýndi Arnar einnig hvernig staðið hafi verið að samningum og uppbyggingaráformum tengdum Heidelberg, nýjum miðbæ í Þorlákshöfn og fyrirhuguðu hjúkrunarheimili, þar sem hann telur að of mikil völd hafi verið færð í hendur fárra fjárfesta án nægilegrar opinberrar umræðu eða gagnsæis.
Arnar sagði jafnframt að Ölfus þyrfti nýjan bæjarstjóra eftir kosningar.
„Ölfus þarf bæjarstjóra sem vill vinna hlutina á faglegri forsendum en dæmin varðandi Heidelberg-verkefnið, nýja miðbæinn og „hjúkrunarheimilið“ sýna. Bæjarstjóra sem yrði með öll sín hagsmunatengsl uppi á borðum, eins og vera ber,“ sagði Arnar.
Elliði svaraði grein Arnars á heimasíðu sinni í pistli sem bar yfirskriftina: Er þetta virkilega það sem Samfylkingin vill bjóða Ölfusingum?
Sagði Elliði skrif Arnars sýna nákvæmlega hvar barátta Samfylkingarinnar í Ölfusi er stödd.
„Þegar ráðherrar, þingmenn og landsmálin eru farin að snúast um að ráðast persónulega á einstaklinga í litlu sveitarfélagi þá er eitthvað farið verulega úrskeiðis,“ sagði Elliði í grein sinni og bætti við að hann hefði engan áhuga á þannig stjórnmálum.
„Áhrifum mínum mun ég áfram beita til að ræða framtíð Ölfus, uppbyggingu samfélagsins og þau verkefni sem raunverulega skipta íbúa máli. Ekki til að níða fólk,” sagði hann og endaði skrif sín á þessum orðum:
„Og það skiptir mig máli að segja þetta skýrt: Ég ber fullt traust til bæjarstjóraefnis Samfylkingarinnar, hennar Bryndísar Gunnlaugsdóttur. Ég mun aldrei taka þátt í persónulegum árásum gegn henni eða öðrum frambjóðendum, sama hversu harkaleg pólitíkin verður. Það er ekki þannig pólitík sem við hjá D-listanum stundum. Kjósendur í Ölfusi eiga betra skilið en þetta.“