Eldur kviknaði í timburhakkara í Sorpu í Álfsnesi fyrir skemmstu. Þetta staðfestir Gunnar Dofri Ólafsson, upplýsingafulltrúi Sorpu. Hann segir eldinn utandyra og engum hleypt inn á svæðið nema slökkviliði.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er við slökkvistörf á vettvangi. Borgar Valgeirsson verkefnastjóri hjá slökkviliðinu segir tvo bíla hafa verið senda í útkallið. Hann sagðist ekki veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Fréttin verður uppfærð eftir því sem fleiri upplýsingar berast.