Allar stöðvar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru boðaðar þegar útkall barst rétt fyrir klukkan þrjú í nótt vegna elds í rafhlaupahjóli í Fellahverfi.
Íbúar hússins náðu þó að koma hlaupahjólinu út úr húsinu og slökkva eldinn sjálfir, samkvæmt varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Það reyndist því einungis þörf fyrir einn dælubíl á vettvang til að reykræsta eftir eldinn.