Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur ræst út fullt viðbragð vegna tilkynningar sem barst um eldsvoða í blokk í Naustabryggju í Bryggjuhverfinu í Grafarvogi í Reykjavík.
Fjórir dælubílar hafa verið sendir á vettvang frá öllum stöðvum slökkviliðsins, þar af tveir körfubílar, til þess að glíma við eldinn sem mun hafa kviknað undir þakklæðningu fjögurra hæða blokkarinnar.
Grétar Stefánsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að framkvæmdir standi yfir á þaki blokkarinnar. Telur hann aðspurður að ekki sé hætta á ferðum enda sé slökkviliðið komið á vettvang og svo virðist sem að tökum hafi verið náð á eldinum.
Fréttin hefur verið uppfærð.

