Hantaveirur eru ólíkar kórónuveirum og almenningi stafar lítil hætta af hópsýkingunni á skemmtiferðaskipinu Hondiusi. Þetta kom fram á blaðamannafundi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í dag.
Tedros Gebreyesus, forstjóri WHO, sagði oftar en einu sinni á fundinum að almenningi stafaði lítil hætta af ástandinu. Hantaveirur væru vel þekktar og smituðust aðeins eftir náið samneyti í lengri tíma. Þess vegna hefði komið upp hópsýking á skipinu.
Hættan á að Hondus-hópsmitið verði að heimsfaraldri sé lítil. WHO sé meðvitað um þau tilfelli sem upp hafa komið utan þeirra átta sem tilkynnt var um í gær og vinni náið með yfirvöldum allra ríkja sem eigi hlut að máli.
„Ég ætla að tala afdráttarlaust. Þetta er ekki SARS-CoV-2. Þetta er ekki upphaf covid-faraldurs. Þetta er hópsýking um borð í skipi,“ sagði Maria Van Kerkhove sérfræðingur hjá WHO.
Í ljós hefur komið að 29 farþegar Hondiusar fóru úr skipinu á eyjunni Sankti Helenu fyrir tæpum tveimur vikum. Fyrirtækið sem rekur Hondius segir að búið sé að hafa samband við alla. Gebreyesus segir WHO vera í góðu samstarfi við öll löndin sem farþegarnir koma frá.
Löndin tólf eru:
- Kanada
- Danmörk
- Þýskaland
- Holland
- Nýja-Sjáland
- Sankti Kristófer og Nevis
- Singapúr
- Svíþjóð
- Sviss
- Tyrkland
- Bretland
- Bandaríkin