Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt að framlengja ekki tímabundið úrræði um gjaldfrjálsar strætóferðir fyrir reykvísk börn á aldrinum 12 til 16 ára. Af þeim sökum verður ekki lengur hægt að sækja um strætókort samkvæmt fyrirkomulaginu. Úrræðið var innleitt til bráðabirgða síðasta vor.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar stendur að kort sem þegar hafa verið gefin út og virkjuð haldi þó gildi sínu þar til gildistími þeirra rennur út og að áfram verði gjaldfrjálst í strætó fyrir börn 11 ára og yngri.
Ákvörðunin var ófjármögnuð
„Ákvörðunin um að hafa gjaldfrjálst í strætó fyrir 12 til 16 ára var tekin undir lok síðasta kjörtímabils og hafði aðeins verið í gildi í tæpa tvo mánuði. Sú ákvörðun var ófjármögnuð. Reykjavíkurborg leggur áherslu á að ákvarðanir um þjónustu byggi á ábyrgð, gagnsæi og traustum fjárhagslegum forsendum. Með því er stuðlað að trausti og fyrirsjáanleika fyrir íbúa borgarinnar,“ segir í tilkynningunni.
Þar segir enn fremur að meirihluti borgarstjórnar sé fylgjandi því að börn í borginni nýti sér strætó í meira mæli.
„Það dregur úr skutli foreldra og eykur sjálfstæði barna og ungmenna. Ákvarðanir sem þessar þurfa þó að skoðast í heildarsamhengi við fjármál borgarinnar og ræða innan sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu þar sem Strætó er rekinn af þeim í sameiningu.“