Nokkrar vikur gætu liðið þar til skipverjar af Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna sem liggur kyrrsett í Sundahöfn, yfirgefa landið. Þeim hefur öllum verið vísað úr landi.
Embætti ríkislögreglustjóra vinnur að undirbúningi heimferðar fólksins, sem kemur víða að. Misflókið er að vísa fólkinu úr landi, það fer eftir aðstæðum og ríkisfangi og gæti tekið frá nokkrum dögum til nokkurra vikna.
Á meðan er fólkið á eigin vegum en má ekki fara út fyrir höfuðborgarsvæðið og þarf að tilkynna sig til lögreglu á hverjum degi.
Ásættanleg málalok að mati ráðherra
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir kyrrsetningu skipsins og brottvísun skipverjanna ásættanleg málalok. „Já, ég tel svo vera. Það er ekki Bandero að þakka að hér urðu ekki slys á fólki,“ segir ráðherra.
Ráðherra segist finna fyrir þrýstingi víða að um að endurskoða lög um hvalveiðar og það standi til, en hátt í 30 langreyðar hafa verið veiddar í sumar.
Margt þurfi að taka með í reikninginn, dýravelferð og útflutningshagsmuni. „Og atvinnufrelsið. Þannig að þetta eru allt atriði sem þarf að vega og meta þegar við vinnum að nýrri löggjöf.“
Ráðherra segir að alþjóðlegar samningaviðræður um alls óskyld mál geti snúist upp í að verja hvalveiðarnar:
„Þá er spurt um þetta, það fer töluverður tími í að verja þau mál. Þetta er óþarflega fyrirferðarmikið miðað við hvað þetta er lítill hluti af okkar heildaratvinnustarfsemi og útflutningi.“
Þurfið þið að láta undan á einhverjum sviðum út af þessu? „Ekkert sem hönd á festir. En þetta er þess eðlis að það þarf að endurskoða þetta.“
Þetta er engu að síður lögleg atvinnugrein. Hingað komu erlend samtök og reyndu að hindra þessa atvinnustarfsemi. Hvað finnst þér um það? „Það er algjörlega óboðlegt og ég styð fullkomnlega þær aðgerðir sem lögreglan fór í og Landhelgisgæslan.“