Fjörutíu og þrjú prósent 43% framhaldsskólanema meta andlega heilsu sína slæma samkvæmt árlegum lýðheilsuvísum sem kynntir voru í gær. Sviðstjóri hjá landlækni segir lýðheilsuáskoranir ungmenna hafa breyst töluvert á síðustu árum.
„Helsta skýringin á þessu er aukinn einmanaleiki meðal ungs fólks og það er tæplega 30% ungmenna í framhaldsskóla sem finnur fyrir einmanaleika oft síðustu daga og það er eitthvað sem við þurfum að huga að,“ segir Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sviðsstjóri hjá landlækni.
Hún segir að mikilvægt sé að leita leiða hvernig hægt sé að fá ungmenni til þess að vera meiri þáttur af samfélaginu svo þau upplifi sig ekki ein.
„Ef okkur líður ekki nógu vel þá gengur ekki nógu vel í því sem við tökum okkur fyrir hendur.“
Mikilvægt að fylgast með samfélagsmiðlanotkun barna
Samfélagsmiðlanotkun barna var í fyrsta skipti á meðal lýðheilsuvísa landlæknis og segir María Heimisdóttir landlæknir mikilvægt að fylgjast með samfélagsnotkun barna, sem sé töluverð hér. Einnig sé mikilvægt að virkja börn til þess að hreyfa sig meira.
80% barna í 4.-5. bekk nota samfélagsmiðla, þrátt fyrir að hafa ekki aldur til. Í skilmálum flestra samfélagsmiðla er kveðið á um að þeir séu bannaðir börnum yngri en 13 ára.
Í sumar voru áform barna- og menntamálaráðuneytisins um lagasetningu sem bannar samfélagsmiðla fyrir ungmenni undir 15 ára kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Samkvæmt þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar verður frumvarpið lagt fram í október. Markmið þess er að „styrkja vernd barna í stafrænu umhverfi og bregðast við áhyggjum af áhrifum samfélagsmiðlanotkunar á velferð barna“.