Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason minnist vinar síns, arkitektsins Björns Ólafs, sem lést í hitabylgjunni miklu í París á dögunum. Í Facebook-færslu sem Egill birti í morgun, segir hann að Björn hafi verið einn mesti heimsborgari og menningarmaður sem hann hafi kynnst.
„Vinur minn Björn Ólafs arkitekt andaðist í hitunum miklu í París. Hann verður kvaddur við athöfn í París í dag,“ skrifar Egill.
Hann segir Björn hafa búið í París frá því seint á sjötta áratugnum og þekkt borgina betur en líklega nokkur annar Íslendingur.
„Björn var einn sannasti heimsborgari og menningarmaður sem ég hef kynnst. Hann vann að verkefnum í byggingalist út um víða veröld og ferðaðist til ótal landa. Hann bjó í París, þekkti hvern krók og kima, og var ákaflega vel heima í menningarlífi borgarinnar.“
Egill segist lengi hafa ætlað að gera sjónvarpsþætti um París með Birni sem leiðsögumanni, en að það hafi aldrei orðið að veruleika.
„Ég hefði viljað gera langa þáttaröð um París með Birni, ganga um götur og hverfi – nú sé ég eftir því að það hafi ekki gerst.“
Þeir kynntust um síðustu aldamót og hittust reglulega, bæði á Íslandi og í París.
Egill rifjar einnig upp glæsilegan feril Björns sem arkitekts og nefnir meðal annars Sjálandshverfið í Garðabæ, Bryggjuhverfið í Grafarvogi og raðhúsin við Látraströnd á Seltjarnarnesi, auk fjölmargra verkefna erlendis, meðal annars í París, Kaliforníu og Egyptalandi.
Færslunni lýkur hann með hlýjum kveðjuorðum til vinar síns.
„Við fjölskyldan kveðjum kæran vin með söknuði. Það verður öðruvísi að koma til Parísar þegar Björn er ekki þar til að spjalla við okkur og veita leiðsögn.“