Hundruð slökkviliðsmanna unnu í alla nótt og hagstæðari veðurskilyrði hafa skipt sköpum í baráttunni við eldana. Loftið er rakara í dag og minni vindur á þeim svæðum sem verst urðu úti.
Yfirvöld í Andalúsíuhéraði segja slökkviliðsmenn nú vinna að því að slökkva eldana sjálfa en framan af hafði starfið aðallega miðað að því að hamla útbreiðslu þeirra.
Jeffrey Kember, Breti sem býr í þúsund manna bænum Bédar, lýsir flóttanum. „Ég keyrði í gegnum Los Pinos og upp. Ég keyrði í gegnum loga, raunverulega loga og hugsaði; Ég get ekki stoppað, ég verð að halda áfram.“
Eiginkona hans var á öðrum bíl en þau náðu bæði að komast heil í fjöldahjálparmiðstöð. Enn er óljóst er hvenær fólk getur snúið aftur heim.
Eldarnir eru með þeim mannskæðustu í áraraðir á Spáni. Hátt í sjötíu ferkílómetrar lands brunnu og 12 hafa farist til þessa, flestir ferðamenn eða erlendir íbúar. Enn er leitað að fleiri fórnarlömbum og sjö manns er saknað.
Þar sem ekki hefur tekist að bera kennsl á líkin gætu sum þeirra sem er saknað verið á meðal hinna látnu.
Yfirvöld segja að sum þeirra sem fórust hafi ekki farið eftir fyrirmælum, ýmist um að yfirgefa svæðið á ákveðnum tíma eða að halda kyrru fyrir í skjóli þegar eldarnir nálguðust.
Eldarnir blossuðu upp á fimmtudaginn. Upptök hafa ekki verið staðfest en talið er að þeir hafi kviknað út frá slitinni raflínu. Stærstu eldarnir hafa logað við þorpið Los Gallardos, norðaustur af borginni Almería í Andalúsíuhéraði.