„Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ - Vísir

„Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ - Vísir

„Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ - Vísir

„Fyrir fimm árum var mér nauðgað. Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa. En það sem tók við á eftir varð að löngu og sársaukafullu ferðalagi sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér. Á meðan kærumálið mitt var enn í gangi svipti gerandi minn sig lífi,“ segir Alexandra Ada Hilmars Sigurjónsdóttir. Hún rifjaði upp reynslu sína í færslu á Facebook-síðu sinni.

Þegar henni hafi verið tilkynnt um andlátið hafi hún fundið fyrir bæði létti og reiði.

„Ég var reið yfir því að hann skyldi aldrei þurfa að mæta fyrir dóm. Aldrei þurfa að horfast í augu við það sem hann gerði mér. Aldrei þurfa að hlusta á mig segja frá því sem hann tók frá mér. Ég fékk aldrei þann dag.“

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígs- eða sjálfsskaðahugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar 1700, netspjallið á heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 sem opinn er allan sólarhringinn.

Annað áfall kom í kjölfarið

Alexandra segir að það hafi verið erfitt að lesa fjölmiðlaumfjöllun þar sem greint var frá því að maðurinn hefði svipt sig lífi eftir að hann var ásakaður um kynferðisbrot.

„Ég var enn brotaþoli. Ég var enn að berjast við óttann, skömmina, reiðina og sársaukann.“

Það hafi svo verið annað áfall þegar lögregla hringdi og tilkynnti henni að foreldrar hins látna hefðu kært Alexöndru fyrir rangar sakargiftir. Hún hafi fengið ofsakvíðakast eftir að hún lagði símann frá sér.

„Á þeirri stundu hrundi allt. Ég var komin beint aftur á byrjunarreit. Svo tók við dómsmál. Ég þurfti að mæta fyrir dóm sem sakborningur. Ég þurfti að rifja upp verstu stund lífs míns enn einu sinni.“

Fékk hótanir

Í tenglum við málið hafi hún þurft að mæta fólki sem hefði kallað hana lygara, sakað hana um að kæra manninn fyrir peninga og stunda framhjáhald.

Fjölmiðlaumfjöllun um málið hafi náð nýjum hæðum eftir að dómsmálið gegn henni fór fram, persónuleg atriði ratað í fréttir og ljótar athugasemdir verið skrifaðar við þær.

„Mér var hótað. Ég var kölluð lygari. Fólk sagði að ég hefði gert þetta fyrir peninga. Fólk sagði að ég hefði eyðilagt líf saklauss manns. Fólk skrifaði ótrúlega særandi hluti um mig. Ég sat og las orð sem enginn brotaþoli ætti nokkurn tímann að þurfa að lesa um sjálfan sig. Ég brotnaði. Aftur. Og aftur. Og aftur.“

Alexandra hafi grátið þegar hún var sýknuð og liðið eins og réttarkerfið hafi loksins trúað henni.

„En sýknudómur tekur ekki burt áfallið. Hann tekur ekki martraðirnar. Hann tekur ekki óttann. Hann tekur ekki árin sem fóru í að berjast fyrir sannleikanum mínum.“

Lítur enn yfir öxlina

Alexandra segist nú fimm árum síðar enn vera að læra að lifa með því sem gerðist. Hún eigi enn erfitt með að treysta fólki og vera einsömul.

„Ég lít enn yfir öxlina þegar ég geng úti. Ég hugsa enn stundum: „Hvað ef þetta gerist aftur?“ Ég verð aldrei sama manneskjan og ég var áður.“

Hún standi keik í dag og þakki fjölskyldu sinni, vinum og fagmönnum fyrir að standa þétt við hlið sér þegar henni fannst hún ekki eiga neitt eftir.

„Ég mun aldrei gleyma þessum degi. Ég mun aldrei verða sama manneskjan. En eitt ætla ég aldrei að leyfa neinum að taka frá mér aftur. Röddina mína. Því skömmin var aldrei mín. Og hún verður það aldrei.“

Færsla Alexöndru í heild sinni

Í dag eru liðin 5 ár síðan líf mitt breyttist að eilífu.

Fyrir fimm árum var mér nauðgað.

Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa. En það sem tók við á eftir varð að löngu og sársaukafullu ferðalagi sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér.

Á meðan kærumálið mitt var enn í gangi svipti gerandi minn sig lífi.

Ég man enn daginn þegar það var bankað upp á hjá mér. Fyrir utan stóð lögreglan. Þau afhentu mér skjal þar sem stóð að málið mitt hefði verið fellt niður, þar sem ekki væri hægt að dæma látinn mann.

Ég stóð bara og starði á blaðið.

Hluti af mér fann fyrir létti.

En annar hluti af mér fylltist reiði.

Ég var reið yfir því að hann skyldi aldrei þurfa að mæta fyrir dóm. Aldrei þurfa að horfast í augu við það sem hann gerði mér. Aldrei þurfa að hlusta á mig segja frá því sem hann tók frá mér.

Ég fékk aldrei þann dag.

Ég fékk aldrei réttlætið sem ég var búin að bíða eftir.

Stuttu síðar birtust fréttir um sjálfsvíg hans á Vísi, mbl , DV og Mannlífi. Þar var fjallað um að hann hefði svipt sig lífi eftir ásakanir um kynferðisbrot og talað um hversu góður maður hann hefði verið.

Ég sat heima og las þetta.

Ég var enn að reyna að lifa af það sem hafði gerst.

Ég var enn brotaþoli.

Ég var enn að berjast við óttann, skömmina, reiðina og sársaukann.

En svo hélt ég að ég gæti loksins byrjað að anda aftur.

Þá hringdi síminn.

Ég var á leiðinni til Húsavíkur með mömmu og manninum hennar þegar lögreglan hringdi.

Ég man enn nákvæmlega hvar við vorum.

Lögreglumaðurinn sagði mér að foreldrar gerandans hefðu kært mig fyrir rangar sakargiftir.

Ég fraus.

Eina sem ég gat sagt var:

„Ertu að fokking grínast í mér?“

Ég skellti á.

Mamma þurfti að stöðva bílinn því ég gat ekki andað.

Ég fékk ofsakvíðakast.

Ég grét.

Ég ofandaði.

Ég ældi af hræðslu.

Á þeirri stundu hrundi allt.

Ég var komin beint aftur á byrjunarreit.

Svo tók við dómsmál.

Ég þurfti að mæta fyrir dóm sem sakborningur.

Ég þurfti að rifja upp verstu stund lífs míns enn einu sinni.

Ég þurfti að horfa á fólk sem hafði sagt ógeðslegustu hluti um mig.

Fólk sem hafði kallað mig lygara.

Fólk sem sagði að ég væri að gera þetta fyrir peninga.

Fólk sem sagði að ég væri að halda framhjá.

Fólk sem vissi ekkert um sannleikann en dæmdi mig samt.

Þegar fjölmiðlar greindu frá því að 23 ára kona á Húsavík væri ákærð fyrir rangar sakargiftir sprakk allt.

Þá fyrst fór ítarlegri umfjöllun um málið að birtast.

Þó ég væri ekki nafngreind vissi fólk á Húsavík hver ég var.

Í fréttaflutningi og umfjöllun var farið yfir mjög persónuleg atriði úr málinu, þar á meðal hluta af framburði mínum um nauðgunina.

Það var ótrúlega sárt að sjá verstu stund lífs míns verða að fréttaefni og umræðuefni almennings.

Undir fréttunum streymdu inn ummæli.

Mér var hótað.

Ég var kölluð lygari.

Fólk sagði að ég hefði gert þetta fyrir peninga.

Fólk sagði að ég hefði eyðilagt líf saklauss manns.

Fólk skrifaði ótrúlega særandi hluti um mig.

Ég sat og las orð sem enginn brotaþoli ætti nokkurn tímann að þurfa að lesa um sjálfan sig.

Ég brotnaði.

Aftur.

Og aftur.

Og aftur.

En sannleikurinn kom að lokum í ljós.

Ég var sýknuð.

Ég man hvað ég grét þegar ég fékk að vita það.

Ekki vegna þess að allt væri orðið gott.

Heldur vegna þess að loksins trúði réttarkerfið mér.

En sýknudómur tekur ekki burt áfallið.

Hann tekur ekki martraðirnar.

Hann tekur ekki óttann.

Hann tekur ekki árin sem fóru í að berjast fyrir sannleikanum mínum.

Í dag, fimm árum síðar, er ég enn að læra að lifa með þessu.

Ég á enn erfitt með að treysta.

Ég á enn erfitt með að vera ein.

Ég lít enn yfir öxlina þegar ég geng úti.

Ég hugsa enn stundum: „Hvað ef þetta gerist aftur?“

Ég verð aldrei sama manneskjan og ég var áður.

Það eru ör sem enginn sér.

Það eru tár sem enginn sér.

Það eru nætur þar sem ég sef ekki og dagar þar sem ég þarf að minna mig á að halda áfram.

En þrátt fyrir allt…

Þrátt fyrir nauðgunina.

Þrátt fyrir sjálfsvíg gerandans.

Þrátt fyrir dómsmálin.

Þrátt fyrir fréttirnar.

Þrátt fyrir hótanirnar.

Þrátt fyrir allt hatrið sem ég þurfti að bera…

er ég enn hér.

Ég hefði aldrei komist í gegnum þetta án fjölskyldunnar minnar, vina minna og þeirra fagmanna sem stóðu við hlið mér þegar mér fannst ég ekki eiga neitt eftir.

Þið hélduð í mig þegar ég gat ekki haldið í sjálfa mig.

Í dag eru liðin fimm ár.

Fimm ár af tárum, ótta, reiði, sorg, dómsmálum, fréttum, hótunum og endalausri baráttu við að finna sjálfa mig aftur.

Ég mun aldrei gleyma þessum degi.

Ég mun aldrei verða sama manneskjan.

En eitt ætla ég aldrei að leyfa neinum að taka frá mér aftur.

Röddina mína.

Því skömmin var aldrei mín.

Og hún verður það aldrei <3.

#erfiðasta #hélt #lifa #yrði #það

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262909009d/-eg-helt-ad-thad-erfidasta-yrdi-ad-lifa-af-naudgunina-sjalfa-

📰 Aðrar fréttir

Inga Lind selur miðborgarperluna
📅 13.10.2026 👁️ 1
Inga Lind selur miðborgarperluna
Inga Lind Karlsdóttir, ein eigenda Skot Productions, hefur sett einbýlishús sitt við Barónsstíg 16 í miðborginni á sölu. Eignin er 155,1 fm að stærð b...
Fyrsti alvöru hvellur vetrarins framundan – Þetta þurfa landsmenn að hafa í huga
📅 13.10.2026 👁️ 1
Fyrsti alvöru hvellur vetrarins framundan – Þetta þurfa landsmenn að hafa í huga
Fyrsti óveðurshvellur vetrarins er í uppsiglingu en eins og kunnugt er hefur Veðurstofa Íslands gefið út gular og appelsínugular viðvaranir fyrir stór...
Emergency calls from botched Christa Pike execution released to US media
📅 13.10.2026 👁️ 0
Emergency calls from botched Christa Pike execution released to US media
A series of calls, obtained by the Associated Press, reveal emergency services were delayed in reaching Pike.
Há­skólarnir verði betur tengdir með breyttri strætó­leið - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 0
Há­skólarnir verði betur tengdir með breyttri strætó­leið - Vísir
Leið 8 mun samkvæmt tilkynningu framvegis hafa viðkomu við Háskóla Íslands, Lækjartorg og Skúlagötu auk Háskólans í Reykjavík og Gömlu Hringbrautar lí...
Bjarni yfir 10 prósentin í Skaga
📅 13.10.2026 👁️ 0
Bjarni yfir 10 prósentin í Skaga
Sjávarsýn, eignarhaldsfélag Bjarna Ármannssonar, er orðið eigandi að meira en tíu prósenta hlut í Skaga hf. eftir að hafa aukið hlutafjáreign sína í g...
Trump hótar þeim sem nota hugtakið gervigreind
📅 13.10.2026 👁️ 0
Trump hótar þeim sem nota hugtakið gervigreind
Trump hótar þeim sem nota hugtakið gervigreind Donald Trump stimplar þá sem óvini sem halda áfram að nota hug­takið gervi­greind en ekki „ofur­greind“...
Scientists are analysing coastal litter to identify its sources and protect our beaches and wildlife
📅 13.10.2026 👁️ 0
Scientists are analysing coastal litter to identify its sources and protect our beaches and wildlife
Scientists are investigating the origins of rubbish found on 30 beaches across the Canary Islands as part of a European environmental research project...
Biðja fólk um að huga að veðri og flýta eða seinka ferðalögum
📅 13.10.2026 👁️ 0
Biðja fólk um að huga að veðri og flýta eða seinka ferðalögum
Lögregluembættin á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra hafa sent frá sér tilmæli til vegfarenda fyrir óveðrið sem er að vænta á morgun. Appelsínugular v...
Þurftu að kyrr­setja flug­vél vegna veggjalúsa - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 0
Þurftu að kyrr­setja flug­vél vegna veggjalúsa - Vísir
Veggjalýsnar fundust fremst á almennu farrými vélarinnar í flugi Qantas þann 9. október en þetta kemur fram í frétt Guardian um málið. Taka þurfti vél...
Boxar til að halda sjúk­dómnum í skefjum - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Boxar til að halda sjúk­dómnum í skefjum - Vísir
Eftir að Nóbelsnefndin tilkynnti á fimmtudaginn að Anne Carson hefði hlotið bókmenntaverðlaunin þaut menningarblaðamaður Vísis vestur á Ægisíðu í von ...
Canary Islands Football Nights: Following AFCON's November qualifiers across time zones
📅 13.10.2026 👁️ 2
Canary Islands Football Nights: Following AFCON's November qualifiers across time zones
November's AFCON qualifiers fall after the Canary Islands return to winter time, keeping the islands an hour behind mainland Spain. A fixture advertis...
Lognið fyrir storminn
📅 13.10.2026 👁️ 2
Lognið fyrir storminn
Landsmenn geta átt von á hægum vindi en nokkurri rigningu í dag. Íbúar á Norður- og Austurlandi þurfa þó að bíða fram yfir hádegi áður en blotnar eitt...
Lög­reglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Lög­reglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða - Vísir
Gular og appelsínugular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir morgundaginn, en gert er ráð fyrir komu mjög djúprar lægðar sem á að ganga yfir lan...
Úkraínskt skip sökk í drónaárás
📅 13.10.2026 👁️ 2
Úkraínskt skip sökk í drónaárás
Úkraínskt skip sökk í drónaárás í morgun þegar árásir voru gerða á tvö úkraínsk skip í Svartahafi.Rumen Radev forsætisráðherra Búlgaríu greindi frá þe...
New bus routes in Adeje carry over 10,000 passengers in just five weeks
📅 13.10.2026 👁️ 2
New bus routes in Adeje carry over 10,000 passengers in just five weeks
Two new municipal bus routes in Adeje have recorded more than 10,000 passenger journeys in their first five weeks of operation, with the service conne...
Mótmælanda hent út af Trump samkomu meðan forsetinn kallaði hann feitan og sagði hann þurfa í megrun
📅 13.10.2026 👁️ 2
Mótmælanda hent út af Trump samkomu meðan forsetinn kallaði hann feitan og sagði hann þurfa í megrun
Donald Trump Bandaríkjaforseti kallaði mótmælanda feitan og sagði hann þurfa að fara í megrun þegar lögreglumenn fylgdu viðkomandi út af samkomu forse...
Hafa gert á­rásir á sex orku­mann­virki eftir yfir­lýsingu Trump - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Hafa gert á­rásir á sex orku­mann­virki eftir yfir­lýsingu Trump - Vísir
Að sögn Selenskí hafa bensínstöðvar, orkuinnviðir og fleiri mannvirki orðið fyrir árásum og alls hafa 30 slasast. Í viðtali við Fox News segir hann að...
TUESDAY WEATHER: Sunshine and temperatures up to 28°C in the Canary Islands today
📅 13.10.2026 👁️ 2
TUESDAY WEATHER: Sunshine and temperatures up to 28°C in the Canary Islands today
The Canary Islands can look forward to another day of pleasantly warm October temperatures today, Tuesday, with sunny intervals across much of the arc...
Carney hvetur til samstöðu viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta
📅 13.10.2026 👁️ 3
Carney hvetur til samstöðu viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta
Alberta er fjórða stærsta fylki Kanada og þar búa um fimm milljónir íbúa. Skoðanakannanir benda til þess að aðeins um fjórðungur íbúa Alberta vilji fu...
Russia's offensive ability is broken, Kyiv's former top general tells BBC
📅 13.10.2026 👁️ 4
Russia's offensive ability is broken, Kyiv's former top general tells BBC
In his first interview since being forced from his post, Gen Syrskyi speaks about Ukraine's future in the war.
Segja árásir á gagnaver hafa þaggað niður í rússneskum áróðursbottum
📅 13.10.2026 👁️ 4
Segja árásir á gagnaver hafa þaggað niður í rússneskum áróðursbottum
Nokkrir bandamenn Úkraínu og netnotendur segja að snarlega hafi dregið úr rússneskum áróðri og upplýsingaóreiðu á netinu. Ástæðan er sögð nýlegar árás...
BBC's Orla Guerin travels with Yemen's southern national security forces through desert battlefield
📅 13.10.2026 👁️ 2
BBC's Orla Guerin travels with Yemen's southern national security forces through desert battlefield
Orla Guerin travelled through Yemen, with forces loyal to its internationally recognised government, to a remote desert battlefield where Houthi rebel...
Karlmaður lést við fall úr rússíbana
📅 13.10.2026 👁️ 5
Karlmaður lést við fall úr rússíbana
Karlmaður lést og nokkrir slösuðust eftir rússíbanaslys í skemmtigarði Six Flags í Georgíu í Bandaríkjunum í gær.CNN segir að maðurinn hafi látist þeg...
Hútar vara Bandaríkin við að veita Sádi-Aröbum hernaðarlegan stuðning
📅 13.10.2026 👁️ 5
Hútar vara Bandaríkin við að veita Sádi-Aröbum hernaðarlegan stuðning
Hútar hafa varað Bandaríkjastjórn við því að blanda sér inn í stríðsátökin milli Húta og Sádi-Arabíu. Mohammed Al Bukhaiti, háttsettur maður í skæruli...
UK growth upgraded but energy prices and rates to bite in 2027
📅 13.10.2026 👁️ 4
UK growth upgraded but energy prices and rates to bite in 2027
The IMF report comes as final preparations are being made to the first Budget under Prime Minister Andy Burham.
UK growth forecast upgraded but energy prices and rates to hit in 2027
📅 13.10.2026 👁️ 2
UK growth forecast upgraded but energy prices and rates to hit in 2027
The prediction from the IMF comes as final preparations are being made to the first Budget under Prime Minister Andy Burham.
Why the Prime Minister wants to talk about Brexit again
📅 13.10.2026 👁️ 4
Why the Prime Minister wants to talk about Brexit again
For the first time since the UK left the EU, we have a prime minister who will "unflinchingly" debate Brexit, says the BBC's political editor Chris Ma...
Hundreds more prisoners to be freed in second phase of early release scheme
📅 13.10.2026 👁️ 5
Hundreds more prisoners to be freed in second phase of early release scheme
Second tranche of prisoners will include those serving up to two and a half years for crimes.
Leggur til að Ísland skapi sér sérstöðu á sviði gervigreindar
📅 13.10.2026 👁️ 5
Leggur til að Ísland skapi sér sérstöðu á sviði gervigreindar
Halla Tómasdóttir forseti Íslands hefur verið í alþjóðlegri nefnd um gervigreind síðan í sumar. Hún segir markmið nefndarinnar að ræða hvernig hægt sé...
Jarþrúður Ásmundsdóttir nýr formaður Jafnréttissjóðs
📅 13.10.2026 👁️ 4
Jarþrúður Ásmundsdóttir nýr formaður Jafnréttissjóðs
Jarþrúður Ásmundsdóttir verður formaður Jafnréttissjóðs Íslands að skipan Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Á vef Stjórnarráðsins segir ...
Hvetur nöfnu sína til að fletta Gest­gjafanum - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 5
Hvetur nöfnu sína til að fletta Gest­gjafanum - Vísir
Tilefni innsendu greinarinnar er viðtal þar sem rætt var við formann Blaðamannafélags Íslands í einum þátta blaðamannsins Jakobs Bjarnars á Vísi sem b...
„Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ - Vísir

Publicly owned rail is popular. But is it making the trains run on time?
📅 12.10.2026 👁️ 4
Publicly owned rail is popular. But is it making the trains run on time?
Meeting travellers' expectations could be challenging, experts warn.
One dead, several others hurt on Six Flags rollercoaster in Georgia
📅 12.10.2026 👁️ 4
One dead, several others hurt on Six Flags rollercoaster in Georgia
Aerial footage at the park after the incident shows a stuck rollercoaster with riders being helped off.
Heating oil customers face tough winter despite shake-up promise
📅 12.10.2026 👁️ 4
Heating oil customers face tough winter despite shake-up promise
Heating oil customers facing soaring bills are promised better regulation of the sector by the government.
Spæjari, klámstjarna og þingkona - Ótrúlegur ferill konunnar sem elskar að vera ögrandi
📅 12.10.2026 👁️ 4
Spæjari, klámstjarna og þingkona - Ótrúlegur ferill konunnar sem elskar að vera ögrandi
Þegar hin ungverska Ilona Staller gekk upp að altarinu aðeins tvítug að aldri árið 1971 lýsti presturinn henni sem sorgmæddustu brúði sem hann hefði n...
Breaking Bad-stjarna látin aðeins 34 ára að aldri
📅 12.10.2026 👁️ 4
Breaking Bad-stjarna látin aðeins 34 ára að aldri
Leikarinn RJ Mitte er látinn, 34 ára að aldri, en hann sló í gegn í verðlaunaþáttunum Breaking Bad þar sem hann fór með hlutverk Walter 'Flynn' White ...
Er bókun 35 tækniútfærsla eða varðar hún við stjórnarskrána?
📅 12.10.2026 👁️ 4
Er bókun 35 tækniútfærsla eða varðar hún við stjórnarskrána?
Tekist er á um bókun 35 á Alþingi þessa dagana og hefur mikið verið rætt hvort hún sé í tæknileg útfærsla eða hvort hún varði við stjórnskrá Íslands. ...
Á­kveðið á­lag sem maður sé undir án þess að fatta það - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Á­kveðið á­lag sem maður sé undir án þess að fatta það - Vísir
Var þetta meðal þess sem snert var á í dag þar sem Rósa var gestur í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni. Hún sagðist fyrst hafa kynnst tækninni í heimsókn...
Sonur Walter White er látinn - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Sonur Walter White er látinn - Vísir
Kemur þetta meðal annars fram í umfjöllun TMZ um andlátið en RJ lést í heimabæ sínum, Brownsville, í Texas-fylki í Bandaríkjunum. Þá standi rannsókn á...
RJ Mitte er látinn - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
RJ Mitte er látinn - Vísir
Kemur þetta meðal annars fram í umfjöllun TMZ um andlátið en RJ lést í heimabæ sínum, Brownsville, í Texas-fylki í Bandaríkjunum. Þá standi rannsókn á...
Telur ólíklegt að vopnahlé Trumps hafi verið raunverulegt
📅 12.10.2026 👁️ 4
Telur ólíklegt að vopnahlé Trumps hafi verið raunverulegt
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir ólíklegt að vopnahlé á milli Rússa og Úkraínumanna, sem Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti u...
„Kjarnorkuvopnaógn meiri en frá tímum kalda stríðsins“
📅 12.10.2026 👁️ 4
„Kjarnorkuvopnaógn meiri en frá tímum kalda stríðsins“
Kjarnorkuógn hefur ekki verið meiri síðan á hátindi kalda stríðsins, að sögn Izumi Nakamitsu, framkvæmdastjóra afvopnunarmála hjá Sameinuðu þjóðunum. ...
Breaking Bad actor RJ Mitte dies aged 34
📅 12.10.2026 👁️ 4
Breaking Bad actor RJ Mitte dies aged 34
Mitte, who lived with cerebral palsy, drew on his own experience for his role in the Emmy-winning drama series.
RJ Mitte: Breaking Bad actor dies aged 34
📅 12.10.2026 👁️ 0
RJ Mitte: Breaking Bad actor dies aged 34
Mitte, who lived with cerebral palsy, starred as Walter White Jr in the Emmy-winning drama series.
Lætur nöfnu sína heyra það vegna ummæla hennar um Gestgjafann - „Tímasetningin gerir þetta verra“
📅 12.10.2026 👁️ 4
Lætur nöfnu sína heyra það vegna ummæla hennar um Gestgjafann - „Tímasetningin gerir þetta verra“
Staða hlaðvarpa á Íslandi hefur mikið verið til umræðu undanfarið eftir að Fjölmiðlanefnd skoraði á nokkur vinsælustu hlaðvörp landsins að skrá sig fo...
Legally Blonde-stjarna hand­tekin sökuð um að hafa bitið flug­freyju - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Legally Blonde-stjarna hand­tekin sökuð um að hafa bitið flug­freyju - Vísir
Er það bandaríski miðillinn TMZ sem greinir frá en þar segir að Selma Blair hafi verið um borð í vél flugfélagsins Delta Airlines á leið til John F. K...
Uppsagnir í hverjum mánuði
📅 12.10.2026 👁️ 4
Uppsagnir í hverjum mánuði
Verulega hefur hægt á í byggingariðnaði undanfarið og íbúðum í byggingu fækkað líkt og Spegillinn hefur fjallað um. Hátt í 1.900 nýjar íbúðir eru tilb...
Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánar­tíðni sjúk­linga - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánar­tíðni sjúk­linga - Vísir
Helga Rósa Másdóttir formaður FÍS skrifar meðal annars um það í greininni að undirmannaðar deildir geti haft mikið að segja um öryggi sjúklinga og afd...
Why Moscow is staying tight-lipped on Trump's energy ceasefire
📅 12.10.2026 👁️ 4
Why Moscow is staying tight-lipped on Trump's energy ceasefire
While Ukraine's Volodymyr Zelensky suggests he would sign up to a ceasefire on energy infrastructure, Russia has said little.