Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segist ekki hafa vitað af skilaboðum Guðbjargar Ingunnar Magnúsdóttur, eiginkonu sinnar, til Guðmundar Inga Kristinssonar, þar sem hún segir Guðmund hafa tvo kosti; afsögn eða stríð.
Guðbjörg Ingunn var aðstoðarmaður Guðmundar Inga og sendi honum skilaboðin í aðdraganda afsagnar hans. RÚV fjallaði um samskiptin í síðustu viku.
Ragnar Þór segist ekki hafa vitað af skilaboðunum. Samskipti Guðmundar Inga og Guðbjargar Ingunnar hafi verið í trúnaði þeirra á milli. Hann æddi við fréttamann á 90 ára afmælisráðsstefnu Almannatrygginga í Hörpu en hann setti ráðstefnuna í morgun. Fréttastofa hefur ítrekað óskað eftir viðtali við Ragnar Þór síðustu vikuna.
Stjórnarandstaðan sótti hart að Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra, í kjölfar þess að skilaboðin voru birt og Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, krafðist afsagnar ráðherra. Ragnar Þór segir viðbrögð stjórnarandstöðunnar frekar ofsafengin.
„Það er nú einu sinni þannig að formenn stjórnarflokka þeir raða í þessi embætti og taka ákvörðun um hvort það séu gerðar breytingar á hverjum tíma. Það eru engir aðrir sem taka þá ákvörðun. Þær ákvarðanir eru svo bornar undir þingflokka og þar við situr.“
Í skilaboðum Guðbjargar Ingunnar segir þó að ákvörðunin sé eingöngu Valkyrjanna en ekki annarra í þingflokki Flokk fólksins. Ragnar Þór segist ekki geta svarað því hvort skilaboðin séu send að undirlagi formannanna þriggja í ríkisstjórn.
Segist ekki hafa vitað af ráðherraskiptunum
Ragnar Þór segist ekki hafa vitað af vilja Ingu Sæland til að fá hann inn í ríkisstjórn, fyrr en eftir að Guðmundur Ingi segir af sér.
„Ég fæ vitneskju um það að það sé vilji til að ég komi inn í félags- og húsnæðismálaráðuneytið eftir að hann segir af sér og það er í sjáfu sér þá sem ég þarf að taka þá ákvörðun,“ segir Ragnar Þór.
Áform Ingu um að skipta Guðmundi Inga út fyrir Ragnar Þór höfðu þrátt fyrir það ratað í fjölmiðla tveimur dögum fyrir afsögn Guðmundar Inga.
Staða ríkisstjórnarinnar aldrei verið sterkari
Ragnar Þór segir erfitt að horfa upp á það þegar trúnaðarsamskipti komast í hámæli. „Sérstaklega þegar þetta stendur manni næst. En þetta er staðan og svona er pólitikin og maður verður auðvitað að sætta sig við það eða ekki.
Þingmönnum var heitt í hamsi þegar samskiptin voru til umræðu í óundirbúnum fyrirspurnartíma í síðustu viku. Spurður hvort Inga SSæland hafi gengið of vasklega fram í svörum sínum á þinginu segir Ragnar Þór: „Minn formaður gengur vanalega vasklega ram og ég myndi ekki vilja hafa minn formann neitt öðruvísi heldur en hún nákvæmlega er.“
Ragnar Þór segist ekki geta séð að málið muni hafa nokkur áhrif á ríkisstjórnarsamstarið. Ríkisstjórnin hafi aldrei staðið sterkar. „Allt mótlæti hefur hingað til styrkt ríkisstjórnsamstarfið og sömuleiðis stöðuna innan þingflokksins.“
Ýmislegt hafi gengið á eins og hótanir í garð ráðherra og aðdragandi og eftirmáli þjóðaratkvæðagreiðslunnar. „Við höfum bara tekið þann pól í hæðina að snúa bökum saman þegar hart er sótt að okkur og við munum gera það áfram og ég held að staða ríkisstjórnarinnar hafi ekki verið sterkari heldur en einmitt í dag.“