Ebba Margrét Magnúsdóttir læknir gagnrýnir Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands, harðlega fyrir ummæli hans um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Hún veltir því fyrir sér hvort fyrrverandi forseti sé farinn að taka sér Donald Trump Bandaríkjaforseta til fyrirmyndar þegar kemur að því að tala niður til kvenna.Tilefnið eru ummæli Ólafs Ragnars í kvöldfréttum RÚV í gær, þar sem hann sakaði Þorgerði Katrínu um að hafa tekið upp „götustelpustíl“ í umræðum um utanríkismál. Sagði hann slíkan málflutning hvorki sæmandi né svaraverðan.
Ebba lætur Ólaf Ragnar heyra það – „Eitthvað annað en sumir götustrákarnir“