Eiginmaður Nicolu Sturgeon, fyrrverandi forsætisráðherra skosku heimastjórnarinnar, sem hún er skilin við að borði og sæng, hefur játað að hafa dregið sér 400.000 pund úr sjóðum Skoska þjóðarflokksins (SNP). Það jafngildir um 66 milljónum króna.
Peter Murrell, fyrrverandi framkvæmdastjóri flokksins, var leiddur burt í handjárnum og úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að hafa játað sekt sína fyrir Hæstarétti í Edinborg, að því Telegraph greinir frá.
Skrá sem sýndi hundruð muna sem Murrell keypti fyrir fjármuni flokksins var birt aðeins nokkrum mínútum eftir játningu hans. Hún sýndi að Murrell, sem skildi við Sturgeon að borði og sæng á síðasta ári, keypti lúxushúsbíl sem kostaði 21 milljón króna sem hann lagði fyrir utan heimili móður sinnar.
Hann eyddi 435 þúsund krónum í salt- og piparstauka, meira en 500 þúsund krónum í sláttuvélaróbot, tæplega 430 þúsundum í kaffivél svo fátt eitt sé nefnt.
Dómur yfir Murrell verður kveðinn upp 23. júní.
Í yfirlýsingu sagði Sturgeon að hún hefði verið „svikin og brugðist af eiginmanni sem ég elskaði og treysti“ og neitaði harðlega allri vitneskju um að hann hefði notað fé SNP til að fjármagna persónulegan lífsstíl sinn.
Íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn sögðu það „óhugsandi“ að hún hefði ekkert vitað um fjárdráttinn, sem átti sér stað á milli ágúst 2010 og október 2022. Hefur verið skorað á hana að segja nákvæmlega hvað hún vissi um gjörðir fyrrverandi bónda síns.