Donald Trump Bandaríkjaforseti var allt annað en sáttur við fréttakonu 60 Minutes, Noruh O’Donnell, þegar hann mætti í viðtal til hennar í gær.
Norah las upp brot úr stefnuyfirlýsingu Cole Thomas Allen sem hleypti af skotum á hátíðarkvöldverði í Washington á laugardagskvöld en á svæðinu voru til dæmis Donald Trump og varaforsetinn JD Vance.
Cole þessi, sem er 31 árs, sendi fjölskyldu sinni skilaboð skömmu áður en hann lét til skarar skríða en í þeim komu fram býsna alvarlegar og óstaðfestir ásakanir í garð forsetans.
„Hann virðist vísa til hvata. Þar skrifar hann þetta: „Stjórnmálamenn eru skotmörk.“ Hann skrifaði einnig: „Ég er ekki lengur tilbúinn að leyfa barnaníðingi, nauðgara og svikara að lita hendur mínar með glæpum sínum.“ Hver eru viðbrögð þín við þessu?“
Trump svaraði að bragði. „Ég beið eftir að þú myndir lesa þetta, því ég vissi að þú myndir gera það. Því þið eruð hræðilegt fólk. Hræðilegt fólk.”
Trump sagðist hafa lesið umrædda stefnuyfirlýsingu og tók fram að Allen þessi væri augljóslega veikur einstaklingur. „En þú ættir að skammast þín fyrir að hafa lesið þetta, því ég er ekki neitt af þessu sem þarna er nefnt. Þú ættir ekki að vera að lesa þetta í 60 Mínútum, þú ert til skammar en höldum áfram, klárum viðtalið.”
Norah reyndi að útskýra fyrir forsetanum að hún væri einungis að vitna í orð árásarmannsins, en Trump sagði að slík umfjöllun ætti ekki heima í þættinum.
Í viðtalinu var einnig rætt um sjálfa árásartilraunina. Trump sagði að hann hefði í fyrstu viljað átta sig á aðstæðum þegar skothvellir heyrðust og gæti það hafa hægt á viðbrögðum leyniþjónustunnar. Hann lýsti því að hann og forsetafrúin, Melania Trump, hefðu síðar lagst á gólfið að fyrirmælum öryggisvarða.
Trump gagnrýndi jafnframt fjölmiðla og Demókrata harðlega og sagði að þar færu saman öfl sem væru andsnúin honum. Hann hafnaði því þó að pólitískt ofbeldi hefði aukist sérstaklega á undanförnum árum og benti á að slíkt hefði lengi verið hluti af sögunni.
„Þetta hefur alltaf verið til staðar,“ sagði hann, en bætti við að orðræða Demókrata gæti verið „mjög hættuleg“ fyrir landið.