Belgísku rokkararnir í dEUS stíga á svið í Austurbæjarbíói á föstudagskvöld og flytja meðal annars lög af fyrstu tveimur plötum sveitarinnar.
Belgíska rokksveitin dEUS heldur tónleika í Austurbæjarbíói næstkomandi föstudag, 2. október, klukkan 20. Þetta verður í fyrsta sinn í tuttugu ár sem sveitin kemur fram hér á landi.
Nútíminn greindi áður frá fyrirhuguðum tónleikum sveitarinnar, en nú styttist heldur betur í að belgísku rokkararnir stígi á svið.
Á tónleikunum verður sérstök áhersla lögð á fyrstu tvær breiðskífur dEUS, Worst Case Scenario frá árinu 1994 og In a Bar, Under the Sea frá 1996. Báðar plöturnar skipa stóran sess í sögu sveitarinnar og innihalda mörg þekktustu lög hennar.
Slógu í gegn með „Suds & Soda“
dEUS var stofnuð í Antwerpen í Belgíu snemma á tíunda áratugnum og vakti mikla athygli þegar lagið „Suds & Soda“sló í gegn árið 1994.
Sveitin varð fljótt eitt þekktasta nafnið í belgísku rokki og tónlist hennar hefur í gegnum tíðina verið tengd við áhrif frá bandarísku jaðarrokki og sveitum á borð við Pixies, Pavement og The Breeders.
Leiðtogi sveitarinnar, Tom Barman, segir í samtali við Morgunblaðið að hann sé enn stoltur af fyrstu plötum dEUS og telur þær hafa elst vel.
„Ég var svo ungur en þær standa vel. Þetta er enn ferskt og hefur staðist tímans tönn,“ segir Barman.

Ný plata væntanleg
Sveitin situr þó ekki aðeins og horfir um öxl. Barman greinir jafnframt frá því að dEUS sé nú að leggja lokahönd á nýja plötu sem stefnt er að því að gefa út á næsta ári.
Síðasta plata sveitarinnar, How to Replace It, kom út árið 2023.
Barman lofar því að næsta plata verði öllu hráari.
„Næsta plata verður skítug, mjög skítug reyndar!“ segir hann.
Síðast kom dEUS fram á Íslandi árið 2006 og því er um nokkuð langþráða endurkomu að ræða fyrir íslenska aðdáendur sveitarinnar.
Tónleikarnir fara fram í Austurbæjarbíói föstudaginn 2. október klukkan 20. Miðar eru til sölu á Midix.