Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að hafa ekið á konu á Sæbraut í september 2024 með þeim afleiðingum að hún lést samstundis. Hann var sviptur ökurétti í eitt ár og gert að greiða móður þeirrar látnu tvær milljónir í miskabætur.
Fangelsisrefsingin fellur þó niður tveimur árum eftir birtingu dómsins ef maðurinn heldur almennt skilorð. Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjaness í febrúar síðastliðnum.
Dómurinn var kveðinn upp í febrúar en birtur í dag. Vísir greindi fyrst frá niðurstöðu dómsins.
Keyrði á 132 km/klst hraða
Ökumaðurinn keyrði norður Sæbraut í lok september 2024 á allt að 132 km/klst og yfir gatnamót við Súðavog á gulu umferðarljósi. Leyfður hámarkshraði á götunni er 60 km/klst en bleyta var á veginum og myrkur.
Á gatnamótunum ók hann á gangandi vegfaranda sem gekk í austurátt. Samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa um slysið gekk konan yfir á rauðu ljósi og lést samstundis.
Ökumaðurinn játaði brot sitt skýlaust fyrir dómi og féllst á bótaskyldu.