Þingfundur á Alþingi hófst klukkan 13:30 og má fylgjast með í spilaranum.
Forsaga málsins er sú að Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar til sautján ára, sagði óvænt upp störfum í lok september. Hörður hefur vísað til þess að stjórn Landsvirkjunar hafi fundað án sín og að ráðherra hafi hafnað fundi með Daða Má.
Fjölmargir stjórnarandstæðingar fóru í pontu í hálftíma umræðu á þinginu í gær og töldu fulla ástæðu til að ræða málið betur.
Daði sagði í sjónvarpsfréttum RÚV í gær að alltaf væri óheppilegt þegar kæmu upp samskiptavandamál á milli forstjóra og stjórnar. Lög hefðu hins vegar ekki verið brotin.
Að neðan má fylgjast með umræðum á Alþingi en vænta má skýrslu frá Daða Má um málið klukkan 15:30.