Bandaríski grínistinn Carrot Top var fluttur á sjúkrahús í Las Vegas á föstudag eftir sjálfsvígstilraun, samkvæmt heimildum TMZ.Carrot Top, sem heitir réttu nafni Scott Thompson, er sagður hafa verið fluttur í skyndi á sjúkrahús eftir atvikið. Sýningu hans á Luxor-hótelinu í gærkvöldi var aflýst í kjölfarið en grínistinn hefur komið þar fram um árabil.Jami Schlicher, talskona Thompsons, staðfesti við TMZ að hann væri á sjúkrahúsi og fengi þar aðhlynningu.
Carrot Top fluttur á sjúkrahús – Sagður hafa gert tilraun til að svipta sig lífi