Hagstofan birti nýja verðbólgumælingu sína klukkan níu í dag. Verðbólga reyndist vera 5,3 prósent í síðasta mánuði. Landsbankinn spáir því að verðbólga hafi aukist í ágúst og verði 5,5 prósent, Íslandsbanki spáir aðeins meiri verðbólgu, 5,6 prósentum.
Kjarasamningar eru uppsegjanlegir ef verðbólga verður yfir 4,7 prósentum. Lengi hefur legið fyrir að verðbólgan yrði yfir þeim mörkum.
Markmið Seðlabankans er að verðbólga sé sem næst 2,5 prósentum og hefur verðbólga verið tvöföld á við það allt þetta ár.