„Síminn byrjaði að hringja klukkan 6.30 í morgun og þá fór maður í það að græja og gera“ segir hann og að þau hafi náð að opna á réttum tíma.
Hann segir hurðina hafa verið spennta upp og starfsfólk sem hafi átt að opna staðinn komið að henni þannig. Hann segir töluvert af peningum hafa verið í peningakassanum.
„Það var mikið að gera í gær, þetta hafa verið stórir dagar,“ segir hann og að það sé því töluvert tjón fyrir fyrirtækið.
Tips-krukkan látin vera
Hann segir starfsfólk hafa fengið nýtt kassakerfi í morgun og því hafi verið hægt að opna staðinn og sinna viðskiptavinum.
„En ég er mjög þakklátur fyrir það að tips-krukkan á borðinu, sem er smekkfull af peningum, var ekki tekin og að starfsfólkið hafi þannig ekki tapað sínum peningum, bara við,“ segir Axel. Ljósin hafi verið kveikt og krukkan við hliðina á kassanum og hún hefði því ekki átt að fara fram hjá þjófunum.
Hann segir að málið verði tilkynnt til lögreglunnar og að eigendur ætli að einbeita sér að öryggi starfsfólk og viðskiptavina.
Töluvert hefur verið fjallað um innbrot í miðbæ Reykjavíkur í sumar og víðar. Fram kom í frétt fyrr í ágúst að ekki hefðu fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022.