Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið út forsetatilskipun um að Ontario-vatn verði endurskírt og verði framvegis kallað Ameríkuvatn. Hann undirritaði forsetatilskipun sína um þetta í Hvíta húsinu í gærkvöld.
Trump hefur fyrirskipað innanríkisráðuneytinu að uppfæra tilvísun í vatnið í opinberum gögnum innan 30 daga og tryggja að ríkisstjórnin kalli það Ameríkuvatn hér eftir. Hann réttlætir nafnbreytinguna með vísun í að dýpsti hluti vatnsins sé innan Bandaríkjanna og þar með geri Bandaríkin tilkall til meirihluta vatnsins.
Þetta útspil Trumps kemur í kjölfar tollastríðs milli Bandaríkjanna og Kanada eftir að viðræður um tollasamkomulag fóru út um þúfur.
Forsætisráðherra Kanada, Mike Carney, hefur hafnað þessari tillögu Bandaríkjaforseta og sagði að Ontario-vatn hefði aldrei heitið neitt annað, þá, nú og alltaf.
Hann vísaði í að vatnið hefði borið þetta heiti í 400 ár, löngu áður en Kanada og Bandaríkin voru stofnuð. Orðið Ontario kemur úr tungu frumbyggja og merkir vatnið er fallegt, vatnið er stórt.
Ontario-vatn er eitt af fimm vötnum sem saman kallast Vötnin miklu sem eru á landamærum Bandaríkjanna og Kanada. Ontario-vatn er á mörkum Ontario-héraðs í Kanada og New York-ríkis í Bandaríkjunum.