Helmingshlutur í HS Orku gæti gengið kaupum og sölum á næstunni því breska félagið Ancala Partners, sem á 50% í fyrirtækinu, hefur hafið undirbúning að mögulegri sölu. Innherji á Vísi greinir frá þessu og segir að viðskiptin, ef af þeim verður, myndu hljóða upp á tugi milljarða króna.
Breski sjóðurinn Ancala Partners eignaðist helmingshlut í HS Orku á móti lífeyrissjóðum 2019. Þá keypti Jarðvarmi, félag 14 lífeyrissjóða, 54% hlut í HS Orku af kanadíska fyrirtækinu Innergex á 37 milljarða króna og 12,7% hlut ORK. Fyrir áttu lífeyrissjóðirnir 33,4% hlut. Því var allt hlutaféð komið í eigu lífeyrissjóðanna fjórtán sem seldu Ancala Partners helminginn.