Breska ríkisstjórnin hyggst veita fjölmiðlaeftirlitinu Ofcom auknar heimildir til að grípa inn í dreifingu efnis á samfélagsmiðlum þegar talið er að „samfélagsleg spenna“ eða óeirðir séu yfirvofandi.
Tillögurnar koma í kjölfar þess að reynt var að afhausa mann í Belfast fyrr í vikunni og þeirra mótmæla og óeirða sem fylgdu í kjölfarið.
Liz Kendall, ráðherra Bretlands í tæknimálum, sagði að ríkisstjórnin myndi í næstu viku leggja fram breytingar á Online Safety Act sem skylda samfélagsmiðla til að bregðast hraðar við ólöglegu efni ef stjórnvöld skilgreina að krísuástand sé yfirvofandi.
„Þeir sem nota samfélagsmiðla til að hvetja til ofbeldis og óeirða eru að brjóta lög,“ sagði Kendall.
Samkvæmt áætlunum ríkisstjórnarinnar myndi Ofcom fá auknar heimildir til að þrýsta á tæknifyrirtæki um að fjarlægja efni sem talið er geta hvatt til ofbeldis eða ólgu í samfélaginu. Breskir fjölmiðlar segja jafnframt að stjórnvöld séu að skoða hvort heimildirnar eigi að ná lengra en til beinna hvatninga til ofbeldis, þó ekki hafi verið skýrt hvað það myndi fela í sér.
Óljóst er hins vegar hver myndi ákveða hvenær um krísu eða yfirvofandi neyðarástand sé að ræða eða hvaða skilyrði þyrftu að vera uppfyllt áður en slíkar heimildir yrðu virkjaðar.
Umdeildar hugmyndir
Tilkynningin hefur þegar vakið áhyggjur meðal gagnrýnenda sem óttast að verið sé að leggja grunn að enn víðtækari ritskoðun á netinu en Bretar búa við nú þegar.
Matt Goodwin, sem tengist Reform UK, sagði að stjórnvöld væru að beina athyglinni frá rót vandans.
„Það eru ekki samfélagsmiðlar sem valda spennunni. Það er stefna stjórnvalda í innflytjendamálum og opnum landamærum,“ sagði hann.
Musk hefur undanfarna daga birt og deilt fjölda færslna um árásina í Belfast og viðbrögð almennings við henni.
Stjórnvöld saka samfélagsmiðla um að magna spennuna
Anna Turley, formaður Verkamannaflokksins, gagnrýndi Musk fyrir afskipti sín af umræðunni og sagði að áhrifamiklir einstaklingar hefðu skyldu til að draga úr spennu en ekki auka hana.
Á sama tíma kallaði leiðtogi Frjálslyndra demókrata, Ed Davey, eftir harðari aðgerðum gegn því sem hann kallaði öfgamenn sem nýttu sorg og reiði fólks til að dreifa hatri með aðstoð reiknirita samfélagsmiðla.
Forsætisráðherrann Keir Starmer tók í svipaðan streng á breska þinginu.
„Við munum grípa til aðgerða gegn þeim sem kynda undir þessu hatri,“ sagði hann.
Ofcom hefur þegar lýst því yfir að hluti óeirðanna í Belfast virðist hafa verið skipulagður á netinu. Stofnunin segir að hún hafi haft samband við ákveðna þjónustuveitendur vegna efnis sem hún telur geta aukið hættuna á frekari óeirðum.
Svo virðist sem margir norður-írskir stjórnmálamenn telji að aðalorsök reiðinnar sem spratt upp sé vegna þess að hægt var að horfa á myndband af árásinni.
You’re f*cking kidding me…
“I wish people didn’t see that video”
The Minister of Northern Ireland blames Tommy Robinson and Elon for what happened in Belfast last night… pic.twitter.com/uK8OHuTJfP
— Liz Churchill (@liz_churchill10) June 10, 2026
24 hours after footage of an African man trying to saw the head off his Scottish victim in a Belfast street circulated online, Irish politicians and journalists openly discuss on live TV how such videos can be suppressed, in future.
We’re going down a dark road. #TonightVMT pic.twitter.com/oDWSYiOVxw— 243Cal 🇮🇪 (@243_cal) June 9, 2026