Til skoðunar er hvort mennirnir tveir sem urðu fyrir hnífsstungum í Breiðholti aðfaranótt sunnudags hafi reynt að kúga fé út úr manninum sem er grunaður um að hafa stungið þá, samkvæmt heimildum Vísis. Annar mannanna lést á slysadeild en hinn liggur enn á gjörgæsludeild Landspítalans með áverka eftir nokkrar hnífsstungur.
Eins og Nútíminn greindi frá í gær eru feðgar meðal þriggja manna sem voru handteknir vegna málsins, samkvæmt heimildum RÚV. Sonurinn er talinn hafa beitt hnífnum í átökum við mennina tvo.
Báðir sagðir hafa hlotið fjölda dóma
Vísir hefur eftir heimildum sínum að hinn látni hafi verið með fjölda dóma á bakinu, meðal annars fyrir fíkniefnalagabrot, innbrot og þjófnað. Hinn særði hafi meðal annars verið sakfelldur fyrir nauðgun, líkamsárás og innbrot. Allt þetta er eftir heimildum Vísis.
Tveir í gæsluvarðhald til 9. nóvember
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi frá því í gærkvöldi að tveir hinna handteknu hefðu verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 9. nóvember í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ekki var krafist gæsluvarðhalds yfir þriðja manninum og er hann laus úr haldi.
Lögregla hefur ekki gefið upp hverjir eru í varðhaldi. RÚV og Vísir segja að það séu feðgarnir. Í frétt mbl.is kl. 23:11 sagði hins vegar að ekki lægi fyrir hvort faðirinn hefði verið úrskurðaður í varðhald. Heimildir Vísis herma að feðgarnir verði vistaðir í einangrun á Hólmsheiði og að faðirinn hafi slasast illa á fingri á vettvangi.
Tengsl milli aðila til skoðunar
E. Agnes Eide, yfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði lögreglunnar, sagði við mbl.is í gær að ástæða væri til að ætla að tengsl væru milli meintra gerenda og þolenda. Samkvæmt Vísi þekktust mennirnir eftir því sem lögregla kemst næst, og sá þáttur málsins er áfram til skoðunar.
Vísuðu lögreglu á hnífinn
Lögregla lagði hald á hníf í fjölbýlishúsi í Breiðholti í gær vegna rannsóknarinnar. Samkvæmt RÚV vísuðu mennirnir sem voru í haldi lögreglu á hnífinn. Mbl.is hafði áður greint frá því að lögregla hefði sótt hníf í fjölbýlishús í Hólunum.
Árásin varð á horni Hraunbergs og Austurbergs í Breiðholti, þar sem blómum og kertum hefur verið komið fyrir.