Brasilísk stjórnvöld hafa höfðað mál gegn samskiptaforritinu Discord og krefjast þess að fyrirtækið grípi til öflugri aðgerða til að vernda börn og ungmenni á miðlinum. Farið er fram á 500 milljónir brasilískra ríala, eða um 11,75 milljarða íslenskra króna, í skaðabætur vegna þess sem stjórnvöld kalla „sameiginlegt siðferðislegt tjón“.
Samkvæmt frétt Reuters var málið höfðað fyrir alríkisdómstól eftir að viðræður stjórnvalda og Discord skiluðu ekki samkomulagi. Stjórnvöld segja að enn séu annmarkar á kerfum fyrirtækisins fyrir aldursstaðfestingu og notendavernd og að það geti sett notendur í alvarlega hættu.
Discord hætti að leyfa bein streymi á miðlinum í Brasilíu 17. ágúst eftir að persónuverndarstofnun landsins, ANPD, fyrirskipaði fyrirtækinu að gera það vegna áhyggja af öryggi barna og ungmenna.
Hvöttu 13 ára stúlku til sjálfsvígs
Discord hafði áður tilkynnt að lokað yrði fyrir beint streymi notenda í Brasilíu eftir að 13 ára stúlka tók sitt eigið líf í slíkri útsendingu í júlí. Sex voru handteknir, þar af fimm unglingar, ásakaðir um að hafa hvatt hana til sjálfsvígs í beinni útsendingu.
Stjórnvöld krefjast meðal annars úrbóta á aldursstaðfestingu, foreldraeftirliti, efnisstýringu og samskiptaaðgerðum Discord. Dagsektir upp á 500 þúsund ríala, eða um 11,75 milljónir króna, gætu bæst við ef fyrirtækið verður ekki við kröfunum.
Discord segir málsóknina ósanngjarna og að hún gefi ekki rétta mynd af afstöðu fyrirtækisins til öryggis og þess að fara að brasilískum lögum. Fyrirtækið segist hafa lagt fram tillögu um tæknilegar úrbætur og aukna fjárfestingu til að bæta öryggi notenda í Brasilíu og gera Discord öruggari fyrir unglinga.
Brasilía hefur að undanförnu hert reglur um vernd barna á samfélagsmiðlum. Á þriðjudag sektaði ANPD TikTok um nærri 30 milljónir Bandaríkjadala, eða um 3,6 milljarða íslenskra króna, vegna ófullnægjandi ráðstafana til barnaverndar.