Yfirkjörstjórn Reykjavíkur fór með rangt mál þegar lesinn var upp heildarfjöldi atkvæða í borginni.
Í lesnum tölum var sagt að heildarfjöldi atkvæða væri 71.996 en í raun var hann 70.996 atkvæði, að því er kjörstjórn greinir nú frá í tilkynningu.
Þá var sagt að M-listi Miðflokksins hefði fengið 8.912 atkvæði á meðan rétt atkvæði listans voru 7.912.
Engin áhrif á fulltrúafjölda
Misræmið helgaðist af mistökum í innslætti í talningarskjal þar sem tilgreind voru fleiri atkvæði en greidd höfðu verið.
Engin tilfærsla atkvæða varð yfir á önnur framboð í kjölfar leiðréttingar. Um er að ræða einfalda talnaleiðréttingu sem breytir engu um fjölda fulltrúa á listunum, segir kjörstjórnin.